Strax komin hækkunarsett fyrir hinn rafdrifna Jeep Wrangler 4xe
- 2021 Jeep Wrangler 4xe fær 2 tommu lyftibúnað og hleðslutæki heima
- Settið bætir við FOX höggdeyfum og lyftir Wrangler-jeppanum um 2 tommur
Jeppabreytingar hafa lengi verið í tísku á Íslandi og mjög stór hluti jeppa er með einhverjar breytingar og ekur um á stærri dekkjum en þeir komu á í upphafi.
En „gósenland“ jeppabreytinganna er í heimalandi alvöru jeppanna, Bandaríkjunum, og framboðið á búnaði til að hækka og breyta jeppum er mjög mikið.
OG það stóð ekki á hlutum til að breyta þessari nýju gerð af Wrangler, því Jeep Wrangler 4xe 2021 er að stíga inn í Jeep-heiminn eins og hver annar Wrangler myndi gera, með fullt af Jeep-studdum fylgihlutum sem þú getur notað til að breyta bílnum. Það er kostur 4xe, að mati bílavefsins autoblog.
2021 Jeep Wrangler 4xe mynd: Jeep
Lyftisettið komið
Stóru fréttir Jeep til að deila með okkur í dag eru í formi lyftibúnaðar. Það er nýr Jeep Performance Parts lyftibúnaður sem er sérstaklega hannaður fyrir 4xe. Það hækkar veghæð Wrangler um 2 tommur - Jeep markaðssetur það sem fyrsta lyftibúnað fyrir PHEV-jeppann eða tengitvinnbílinn.
Jeep búnaðurinn inniheldur FOX dempara, nýja gorma, nýja neðri arma að framan, sérstakan jafnvægisbúnað að framan og aftan, nýtt höggstopp að framan og aftan, allar festingar sem þú þarft auk JPP merkis.
Það er heilmikill pakki fyrir 2 tommu lyftu, auk þess sem þetta kemur allt í fínum JPP-merktum viðarkassa.
Allt ofangreint mun kosta þig $ 1.495 í Bandaríkjunum eða sem svarar 183.000 ISK . Jeep tilgreinir að allir hlutirnir séu sérstaklega gerðir og hannaðir fyrir 4xe - við gerum ráð fyrir að það þýði að þeir hafi endurskoðað nokkra þeirra til að takast betur á við aukaþyngd 4xe frá rafhlutunum.
Auk lyftibúnaðarins tilkynnti Jeep einnig framboð og verð á 240 volta hleðslutæki til nota heimavið hjá Mopar og Jeep. Þú getur valið á milli „tengi“ útgáfu eða „fasttengdrar“ útgáfu.
En til viðbótar við ofangreint er JPP vörulistinn með úrval aukahluta fyrir 4xe Wranglerinn, rétt eins og með alla aðra.
Bæði lyftibúnaðurinn og hleðslutækin eru fáanleg núna, þannig að þú getur nú þegar farið að sérsníða og eyða meiri peningum í nýja tengitvinn jeppann þinn, segir Autoblog við bandarísku jeppamennina.
(frétt á Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Í upphafi var leirinn. Og leirinn mótaði bíl. Þannig hefur þróunin verið frá því á fjórða áratug síðustu aldar; bíllinn er fyrst mótaður í leir og það er síður en svo ódýrt. Leirmódel af bíl í raunstærð er heljarinnar hlass og er efniskostnaðurinn einn og sér í kringum 20.000 dollarar.
Fyrsti rafknúni bíll Toyota á nýja e-TNGA grunni, sem aðeins notar rafhlöður verður afhjúpaður í apríl...
Hyundai hefur boðið upp á spennandi forkynningu á nýjum Ioniq 5 rafknúnum sportjeppa. Bíllinn verður fyrsti framleiðslubíllinn frá...
Þá er það afstaðið: Bananakassapróf Bjørns Nyland. Bjørn Nyland er Norðmaður (engar áhyggjur – hann talar ensku) sem prófar rafbíla. Bílagagnrýni hans er á YouTube og nýtur sá norski gríðarlegra vinsælda.