Fimm nýir Volvo FH16 dráttarbílar afhentir hjá Velti
Fimm nýir Volvo FH16 dráttarbílar voru afhentir með viðhöfn hjá Velti á Hádegismóum 8 á föstudaginn.
„Það var mikill heiður og virkilega gaman að tvö svona öflug fyrirtæki hafi fengið nýjustu kynslóð Volvo FH16 afhenta sama dag.
Þessi afhending markar upphaf mikillar bylgju afhendinga hjá Velti næstu mánuði og því gríðarlega spennandi tímar framundan hjá Velti.
Hópur frá Jóni og Margeiri í Grindavík við afhendingu bílanna.
Byrjun ársins 2021 er sú sterkasta í sögu Volvo atvinnutækja hjá Brimborg | Velti og það stefnir í metár bæði í vörubílum og vinnuvélum hjá Velti.
Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að afhenda svona marga bíla á sama degi, en í þessu verkefni unnu söludeild og þjónustdeild/verkstæði frábærlega saman og ómetanlegt að hafa þetta allt á einu stað þar sem allir vinna sem ein heild“ segir Marteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri Veltis.
Forsvarsmenn Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði við afhendingu bílanna.
Framúskarandi þægindi og nákvæmni með I-SHIFT í nýjum Volvo FH16 dráttarbíll
Nýr Volvo FH16 er magnaður enda framúrskarandi tækni og gæðaefni höfð að leiðarljósi við hönnun og þróun bílsins.
Bíllinn er hannaður með þægindi ökumanns í huga og öll stjórntæki í réttri vinnuhæð.
Ökumaðurinn getur bæði notað I-SHIFT í gírstönginni eða í þar til gerðum hnapp í mælaborði bílsins allt eftir því hvað hentar hverju sinni, nákvæmni I-SHIFT er einstök.
Í bílnum er 9“ skjár þar sem þú getur fylgst með umhverfi bílsins, umferðinni og farmi bílsins með ALLT AÐ átta myndavélum og ökumannsforritum.
Aðrar umfjallanir
Ekki þykir við hæfi að gera lítið úr því sem lítið er fyrir og því ætla ég ekkert að minnast á gáfur eða greindarfar ökumannsins í myndbandinu. En skynsamur virðist hann ekki. Langt því frá!
Eins og varla hefur farið fram hjá neinum er heimsmeistaramótið í knattspyrnu nýhafið. 32 landslið bítast um titilinn og sparkspekingar úti um allan heim velta vöngum yfir...
Það var miðsumars árið 1983 að ég fékk hið langþráða bílpróf. Það gekk hins vegar ekki andskotalaust að mínu mati. Á þeim tíma lá við að ungir ökumenn biðu yfir nóttinna við...
Þessi litli tveggja sæta sportbíll, smíðaður samkvæmt japanskri tæknilýsingu „kei bíls“, fær fjölda af uppfærslum í útliti og á undirvagni til að búa til bíl sem myndar upphafspunkt...