Hyundai Tucson PHEV hlýtur góðar viðtökur
Vöxtur í bílasölu hélt áfram í maí, annan mánuðinn í röð hér á landi borið saman við fyrra ár. Nam aukningin í mánuðinum rúmum 140,6% á markaðnum í heild og 229% hjá BL, þar sem 341 fólks- og sendibíll af merkjum fyrirtækisins var nýskráður, þar af 145 nýorkubílar.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1623069609_1992035077952632459_5809873554217224.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1623069610_4552872115321199383_5809874262211825.jpg)
Tucson – Leaf - Duster
Hyundai var lang söluhæsta merki BL í maí með alls 107 nýskráningar og er ánægjulegt hve tengiltvinnjepplingurinn Tucson PHEV hlýtur góðar viðtökur viðskiptavina en alls nýskráði BL 25 slíka til einstaklinga og fyrirtækja í mánuðinum auk þess sem um tvö hundruð aðilar hafa látið taka frá fyrir sig bíl úr næstu sendingu. Bíllinn var kynntur í lok maí.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1623069609_5735741591491989723_5809872835714214.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1623069611_2893339434696579298_5809874967447016.jpg)
Bílaleigurnar tekið hressilega við sér
Alls voru 777 bílaleigubílar nýskráðir í maí sem er 1.095% aukning frá sama mánuði 2020 og af þeim voru 178 af flestum merkjum sem BL hefur umboð fyrir. Í heild hafa 1.397 bílaleigubílar verið nýskráðir það sem af er ári og af þeim eru 353 af merkjum frá BL.
23,3% aukning orðið í bílakaupum landsmanna
Þess má að lokum geta að 4.709 fólks- og sendibílar voru nýskráðir fyrstu fimm mánuði ársins sem er 23,2% aukning frá sama tímabili 2020. Af þeim voru 1.096 af merkjum sem BL hefur umboð fyrir, eða 23,3%.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1623069611_4999128516367151942_5809875567788558.jpg)
Nýskráðir fólks- og sendibílar BL í maí og fyrstu fimm mánuði ársins borið saman við sama tímabil 2020
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1631734805_3290186466985917638_102780031434642.jpg)
City Transformer er smábíll frá Ísrael. Bíllinn sá birtist óvænt, án nokkurs fyrirvara, á IAA-bílasýningunni í München.
![](https://img.bilaskra.is/images/1626205210_4041557856872453230_816514805528455.jpg)
Samkvæmt nýlegri skýrslu um framleiðslu sportbíla í Japan kemur fram að nýi Nissan GT-R verði með brunavél undir húddinu...
![](https://img.bilaskra.is/images/1657813205_4943704720815578620_11439110488503651.jpg)
Maríubjalla? Það má kannski segja það en þessi snotra bjalla er afrakstur tveggja ára vinnu. Þó bjallan, sem nefnist María, sé skrautleg kemst hún ekki í hálfkvisti við eigandann sem er skrautlegri en jólatré á Þorláksmessu.
![](https://img.bilaskra.is/images/1652287223_1066434892796797154_5913128026156917.jpg)
Ford hefur afhjúpað rafknúinn sendibíl sem heitir E-Transit Custom sem var þróaður í stað Transit Custom í Evrópu. Hvað stærðina varðar er þessi nýi...