Blæju- og coupé-bílar Benz fá nýtt nafn
- Nýr Mercedes CLE 2023 kemur í stað coupé- og blæjubíla Benz C-Class og E-Class
Blæjubílar og coupé-bílar eru ekki mjög algengir hér á landi, en því mun vinsælli í sumum nágrannalöndum okkar þegar menn horfa til sportlegra gerða. En núna ætlar Mercedes Benz að einfalda þetta og fækka bílum í framboði sínu, sem náði alls um 50 mismunandi gerðum árið 2020.
Og þetta er meðal annars gert með því að sameina nokkrar gerðir undir einu merki: Mercedes CLE, nafn sem þýska vörumerkið hefur átt um tíma, en endurnýjaði nýlega einkarétt sinn á því nýlega.
Marcus Schafer, rannsóknar- og þróunarstjóri Mercedes, benti fyrr á árinu á að framboð vörumerkisins á blæjubílum væri nokkuð „mikið“, þar sem bílar sem nýlega var hætt með, SLC, C-Class Cabriolet og E-Class Cabriolet hefðu allir verið að keppast um pláss á markaði sem er ekki er að gefa mikið af sér peningalega.
Áður en nýi CLE kemur árið 2023 mun vörumerkið þróa nýjan SL í fullri stærð sem sportlegri og markvissari gerð með því að nota nýjan grunn þróaðan af AMG.
Samkvæmt vef Auto Express eru tæknilegar upplýsingar enn óþekktar á þessu stigi og langt er enn í frumsýningu á CLE - það er enn von á nýjum SL sem kemur fyrst, seinna á þessu ári, ef marka má fréttir.
Nýjasti C-Class er aðeins fjögurra strokka og mikið af CLE framboðinu verður það líka. Gert er ráð fyrir að næsta C 63 gerð muni vera með nýrri afkastamikilli fjögurra strokka tvinnvél sem er fengin úr M139 2,0 lítra túrbóvélinni sem notuð var í A 45. Stærri S-Class, einnig á MRA-2 grunni, gæti fengið 3,0 lítra túrbó sex strokka línuvél með 48 volta mildri tvinnaðstoð, ef Mercedes telur að sex strokka valkostur verði nauðsynlegur.
(byggt á frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
PARÍS – Renault mun veita mjög arðbærum sendibílaeiningum sínum rekstrarlegt sjálfstæði og ætlar sér að koma með nýjan rafknúinn einingabíl í samvinnu...
Dagar hf. tóku nýverið í þjónustu sína fjórtán nýja rafbíla af gerðinni Renault Zoe frá BL
Stundum þyrmir yfir mann og göturnar virðast fullar af ökutækjum sem stjórnað er af vanhæfum ökumönnum. Hér eru tvær sögur sem varpa ljósi á hvernig sumir öðlast ökuréttindi þvert á öll lögmál og svo hið gagnstæða: Þegar ósýnileg öfl virðast grípa í taumana og koma í veg fyrir stórslys.
BYD er einn af leiðandi framleiðendum rafknúinna ökutækja í heiminum og með stóra markaðshlutdeild í rafbílum og núna bætast þrír nýir rafbílar við á markaði á Íslandi frá þeim...