Já, það er eitt og annað sem virðist endalaust. En aldrei fyrr hafði ég hugsað um Datsun í hinu endalausa samhengi. Ekki fyrr en gömul grein í dagblaði vakti athygli mína. Þetta er grein eða greinarstúfur sem birtist í Tímanum þegar undirrituð var eins árs og sex daga gömul.
Vissulega tók ég ekki eftir greininni þá, enda upptekin við annað. Læra að ganga og svoleiðis vesen.
Nú, nema hvað, þá segir í greininni sem birtist í Tímanum þann 29. júlí 1982 frá tveimur bílum af gerðinni Datsun Cherry 1977 árgerð (F10) sem höfðu sameinast. Þeir höfðu verið soðnir saman og, eins og myndirnar sýna, þá er bíllinn endalaus. Sem er auðvitað ekki rétt þar sem hann er með tvo framenda. En það skiptir ekki máli.
Viðhaldið lengir líf þeirra gömlu
Var bílunum skeytt saman þegar hvor um sig hafði lagt 130.000 kílómetra að baki. Átti þessi samsuða að sýna hversu brýnt væri að halda bílum vel við: Öðrum, þeim dökka á myndinni, var haldið við.
Hann fékk gott viðhald; reglulega var skipt um olíur, kerti, platínur og fleira.
Þeim ljósa var hins vegar bara ekið. Ekkert var gert fyrir blessaðan bílinn. Vanræksla og ekkert viðhald. Hér nálgumst við kjarna málsins og er best að vitna beint í grein Tímans:
Hvað varð um tvíhöfða?
Hér var athygli blaðamanns vakin. Það er raunar svo að óskaplega margt gerir það, þ.e. vekur athygli undirritaðrar. Ekki það að fyrirbærið á myndinni sé fagurt á að líta; síður en svo.
En hins vegar þurfti ég nauðsynlega að fá svör við nokkrum spurningum:
Hver stóð fyrir þessu?
Uppátækið virðist fremur litla athygli hafa vakið, þarna fyrir tæpum fjörutíu árum, og var ekki hlaupið að því að finna upplýsingar um þessa (að því er virðist) misheppnuðu markaðssetningu FRAM.
En viti menn! Árið 1998, eða þar um bil, rambaði bifvélavirki nokkur í Ameríkunni stóru, á þetta fyrirbæri þar sem það var, báðir helmingar þess, vanrækt og jafnvel ljótara en áður. Á einni vefsíðu kemur fram að þetta hafi verið við hlið kirkju en það er nú aukaatriði, nema bíllinn hafi þá fundist í kirkjugarði.
Áfram eða aftur á bak?
Bifvélavirkinn sem fann þennan sérkennilega Datsun, virðist hafa þótt nokkuð í hann spunnið því um áratug eftir að hann rambaði á tækið var myndbandi hlaðið upp á YouTube og þar sést hvar bíllinn brunar áfram eða aftur á bak. Það veltur alfarið á því frá hvorri hlið bílsins er horft.
Árið 2009 var þetta „tvíbíli“ á sýningunni Inland Valley Show á vegum Z-Car Club í Temecula í Kaliforníu.
Meðfylgjandi myndir eru vissulega afleitar en sýna samt apparatið sem var ekkert til að hrópa húrra fyrir. Léleg gæði myndanna vinna kannski bara með apparatinu, ef eitthvað er.
Ekki er fleira um þann endalausa hægt að skrifa en hér er myndbandið sem sýnir að þetta gat ekið. Til að bifreiðin fengi að vera á númerum (og þar af leiðandi lögleg í umferðinni…) voru bremsuljósin í öðru grillinu.
Aðrar umfjallanir
Lexus, sem var frumsýndi ROV torfærubílahugmynd sína í lok síðasta árs, sýnir hann núna á Tokyo Auto Show í Tókýó í ár. Þar er hægt að forskoða...
„Street food“ er ekki bara tekinn upp á næsta plan heldur upp á næsta pall hjá honum Eleodoro Lopez. Hann flandrar um Los Angeles í Kaliforníu á pallbílnum sínum og malar gull. Og bakar pizzur.
Þessi háalvarlega grein fjallar um elstu hemlakerfin í bílum og fleiri faratækjum og er byggð á mjög áreiðanlegum heimildum...
Lexus hefur staðfest að fyrsti sérsniðna rafbíllinn þeirra muni heita RZ - og sendi frá sér þrjár mydnir sem sýna aðeins lauslega við hverju má búast...