Mercedes veðjar á að kaupendur grunngerða rafbíla muni sætta sig við styttri drægni
Veðja á minni bíla með styttri drægni
Kallenius veðjar á að neytendur muni sætta sig við styttri drægni fyrir ódýrari gerðir þar sem verð á grunnefnum í rafhlöðum hækkar.
Mercedes mun nota litíum járnfosfat rafhlöður fyrir næstu gerð EQB. Hér á myndinni er núverandi bíll, sem kom í sölu í Kína og Evrópu á þessu ári, og kemur á markað í Bandaríkjunum á næsta ári.
Mercedes leggur yfir 40 milljarða evra í að rafvæða framboð sitt á þessum áratug. Áætlanir þess fela í sér að framleiða rafhlöðubíla á þremur grunnum fyrir rafknúin ökutæki frá 2025 og setja upp átta rafhlöðuverksmiðjur um allan heim með samstarfsaðilum.
Flestir treysta á nikkel og kóbalt
Flest fyrirtæki í bílaiðnaði treysta á nikkel og kóbalt í litíumjónarafhlöðum til að auka afköst rafbíla. Samt eru birgðir af báðum efnum takmarkaðar. Nikkel, sem hjálpar til við að veita afl og drægni, er einnig viðkvæmt fyrir eldi; áhættu sem kostar iðnaðinn milljarða við að reyna að takmarka.
Forstjóri Tesla, Elon Musk, sagði í síðustu viku að bílaframleiðandinn væri að skipta yfir í litíum járnfosfat rafhlöður á heimsvísu fyrir venjulegar gerðir. Tesla notar LFP rafhlöður í Kína frá Contemporary Amperex Technology Co., eða CATL, sem hefur skilað aðferðum til að ná betri afköstum frá íhlutunum.
CATL útvegar einnig rafhlöður á grunni nikkel í Mercedes EQS. CATL og Mercedes eru með samning sem felur í sér LFP rafhlöður með „cell-to-pack“ verkfræði CATL, sem sparar þyngd og kostnað með því að samþætta sellur beint í rafhlöðupakka.
Með samstarfi um rafhlöður, langtímasamninga um hráefni og horfur á byltingarkenndri tækni sagði Kallenius að hann væri viss um að Mercedes muni hafa nægar rafhlöður til að knýja nýju rafbílalínuna sína.
„Við erum búin að „dekka“ okkur, já,“ sagði hann. „En það er ekki þannig að þú getir bara hallað þér aftur á bak og sagt: „Jæja, allt mun lagast af sjálfu sér.“ Þú verður að taka virkan þátt og reyna að stjórna aðfangakeðjunni þegar við göngum inn í öld rafbílsins.“
(Bloomberg - Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Marteinn Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar...
Þá er loks löngu ferli lokið með því að gengið hefur verið frá sameiningu Groupe PSA (Citroen, DS, Peugeot og Vauxhall-Opel) og FCA...
Fyrr í sumar skrifuðu félögin um samstarf um þróun og framleiðslu sendibílls í millistærðarflokki sem Ford mum sjá um