Sex öxlar, tólf hjól og tvö til viðbótar. Þá erum við komin með pýramída gott fólk! Stóra spurningin sú hvort hægt sé að aka pýramída.

image

Þegar svona risatrukkur er smíðaður er auðvitað nauðsynlegt að hafa góðar teikningar til að fara eftir. Eða teikningu.

Hérna er eitt það skemmtilegasta og jákvæðasta myndband sem ég hef séð í lengri tíma. Það er gott að líta aðeins upp úr dumbungi og hörmungum heimsins, gefist þess kostur.

Ein frábær leið til þess að hugsa um eitthvað skemmtilegt (ekki endilega „fallegt“ í þessu tilviki) er t.d. að horfa á þennan dásemdar-karl sem útskýrir allt sem hann er að brasa í kringum þessa Lödu. Lödu sem hann ætlar að gera að fjórtán hjóla monster truck.

Þetta myndband (fyrra myndbandið - það er nefnilega framhald sem skýrist þegar þar að kemur) er í lengri kantinum og því datt mér í hug að benda á að óþolinmóðir geta rúllað inn á sjöundu mínútu. En þeir missa þá af ýmsu misgáfulegu!

Tíu dögum síðar kom í ljós að ekki þurfti að æða alla leið til Noregs til að prófa „tryllitækið“  því Rússland er jú voða stórt land og alveg hægt að finna landslag sem hentar til hvers kyns prófana. Og það gerðu þeir:

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is