Ken Block virðist alltaf vera að gera eitthvað skemmtilegt. Þess vegna er hann sennilega svona kátur!
Það er fjör hjá okkar manni! Mynd/Skjáskot/YouTube
Í myndbandi sem hann birti rétt áðan, lætur hann „reyna á“ fjöðrunina í þessu sturlaða farartæki. Það er í raun og veru magnað að horfa á þetta fyrirbæri. Það er best að hafa ekki fleiri orð um það en eitt vil ég þó nefna sem er óvenjulegt við þetta myndband: Í því sést myndatökuliðið sem er út um allt að mynda þennan síkáta ökumann. Þannig að hér er smá sýnishorn af því hvernig myndböndin hans Ken Block verða til.
Myndbandið er langt en hér byrjar það á fljúgandi ferð:
Þeir sem vilja fá útlistun á öllu tæknistöffinu geta byrjað hér (sama myndband sko - byrjar bara fyrr):
Aðrar umfjallanir
Það kemur sjaldnast fyrir þann sem á „spes“ bíl að hann rambi á alveg nákvæmlega eins bíl og reyni að komast inn í hann. Haldi að þetta sé sinn bíll og allt það. Þetta hefur þó komið fyrir, meira að segja hjá þeim sem eiga fornbíla.
Ný Evrópuvottun á bílaviðgerðum á Íslandi tryggir fulla árekstravörn, óskerta verksmiðjuábyrgð og 3ja ára ábyrgð á tjónaviðgerðum.
Toyota í Japan kynnti á heimasíðu sinni nýja útgáfu af vetnisbílnum Mirai með eftirfarandi orðum...