46 ára kona í Washington í Bandaríkjunum gekk nánast óskrámuð frá þessum „bíl“ eftir að trukkur beinlínis kramdi hann. Upplýsingafulltrúi lögreglunnar hefur séð ýmislegt á löngum starfsferli, en ekkert í líkingu við þetta.
„Þegar kranabíllinn lyfti framenda vörubílsins af bílnum, komst konan út án aðstoðar.“
Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi er bíllinn samanbrotinn, rétt eins og hann hafi farið í hina eiginlegu bílapressu.
Var „of nálægt“
Vörubílstjórinn fékk tæplega 200 dollara sekt fyrir að hafa ekið „of nálægt“ bíl konunnar en margir eru rjúkandi illir (á Twitter) yfir því hversu lítilvæg sú sekt er. Of nálægt er eiginlega ekki orðalag sem nær til þess þegar vörubíllinn er beinlínis búinn að kremja fólksbílinn svo rækilega að dekkin nánast koma upp úr þakinu.
Ömurlegur bíll eða frábær?
Eins og oft vill verða, þegar fólk kemst lífs af úr hrikalegum árekstri, hafa skapast áhugaverðar umræður á Twitter, og sitt sýnist hverjum um ágæti bílsins. Nissan Altima.
Myndir/Twitter
Á meðan einhverjir lofa æðri máttarvöld fyrir að hafa skapað menn sem smíðuðu Nissan Altima eru aðror fokvondir og bölva verkfræðingum Nissan fyrir að búa til svona bíl.
Aðrar umfjallanir
Skuggamyndin af framenda á bíl, sem fylgir með þessari frétt, er fyrsta innsýn okkar í fyrsta sérsniðna rafknúna farartæki Lexus - bíl sem ætti að...
Blæjubílar og coupé-bílar eru ekki mjög algengir hér á landi, en því mun vinsælli í sumum nágrannalöndum okkar þegar menn horfa til sportlegra gerða...
Bílablogg hefur að undanförnu fylgst með nýjum Santa Fe sem er væntanlegur á Evrópumarkað með haustinu. Í byrjun var lítið um nánari...
Ef horft er á lista yfir söluhæstu bílana í Evrópu árið 2018 og þá kemur í ljós að á eftir Volkswagen Golf kemur fram ein gerð: Skoda Octavia.