Dómur genginn í máli ON
ON hafði betur og fær að opna Hverfahleðslurnar
„Þetta er fyrst og fremst mikið gleðiefni fyrir þá fjölmörgu rafbílaeigendur sem treysta á þessa þjónustu. Það var alveg ljóst í okkar huga að forsendurnar fyrir niðurstöðu kærunefndar væru rangar og því ákváðum við að láta reyna á þetta fyrir dómi,“ segir Berglind Rán Ólafsdottir framkvæmdastýra ON.
Í kjölfarið var Orku náttúrunnar, sem vann útboðið á sínum tíma, gert að slökkva á hleðslunum.
Fallist á sjónarmið ON
Eftir að hafa rýnt í úrskurð kærunefndar taldi ON ljóst að forsendur nefndarinnar fyrir niðurstöðunni væru rangar. Því var ákveðið að fara með málið fyrir héraðsdóm til þess að fá úrskurðinum hnekkt. Flýtimeðferð fékkst á dómsmálinu og í dag féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á sjónarmið ON segir á vef ON um málið.
Eðlilegt að reyna á úrskurð sem þennan
Bílablogg leitaði til Sigurðar Ástgeirssonar hjá Ísorku sem sagði að það hafi verið eðlilegt að reyna á úrskurð sem þennan fyrir dómi enda málið flókið og án fordæma. „Dómurinn snýr ákvörðun kærunefndar og gerir þann úrskurð ógildan.
Ég hef reyndar ekki náð að lesa dóminn í heild sinni en það fylgir því léttir að rafbílaeigendur geti notað stöðvarnar að nýju”, sagði Sigurður.
Hverfahleðslurnar sem hafa verið ótengdar síðan í lok júní verða tengdar á ný strax í vikunni. Til þess að þessi endurnýjuðu kynni rafbílaeigenda af Hverfahleðslum ON gangi sem best fyrir sig hefur fyrirtækið ákveðið að frá og með föstudeginum 26.nóvember verði frítt að hlaða í öllum Hverfahleðslum ON út mánuðinn.
Mynd með frétt: www.on.is
Aðrar umfjallanir
Af þeim liðlega 750 fréttum sem Bílablogg hefur birt á sínum vef á síðustu mánuðum hafa fáar, ef þá nokkrar, vakið jafn mikla athygli eins og lítil frétt...
Ójá! Það er fallegt hljóðið í þessum V8 Ford Bronco Baja Monster. Bíllinn kemur á markað í Bandaríkjunum 2023 og er sérlega skemmtilega útbúinn og spennandi að sjá.
Ford Bronco jeppinn kemur til Evrópu á næsta ári. Ford hefur tilkynnt að endurfæddur torfærubíllinn verði fáanlegur í „stranglega takmörkuðu magni“ í völdum Evrópulöndum...
Óskir Arnold Schwarzenegger munu rætast og það bráðum. Formaður Mercedes, Ola Källenius, sagði í hringborðsumræðum...