Þegar litið er á þennan grafalvarlega dreng ætti manni að vera ljóst að hann er gríðarlega einbeittur. Ekki leiður, því hann brosir aðeins. Enn þann dag í dag brosir hann sjaldan og er ákaflega einbeittur. Þetta Max Verstappen.
Mamma og pabbi bæði í kappakstri
Formúlu 1 ökumaðurinn Max Emilian Verstappen fæddist þann 30. september 1997 á Hasselt sjúkrahúsinu í Belgíu. Á vefsíðu hans segir að hann hafi alltaf verið snöggur.
Til að mynda hafi hann komið í heiminn á mettíma.
Tíu dögum eftir fæðingu drengsins fór faðir hans til Japan að keppa í Formúlu 1 í Suzuka. Þangað hafði Max litli lítið að sækja á þeim tímapunkti.
Feðgarnir Jos og Max. Skjáskot/YouTube
Jos Verstappen, faðir Max, var farsæll keppandi í Formúlu 3 og keppti síðar í Formúlu 1. Án þess að ferill hans sé rakinn hér sérstaklega þá hefur Jos komið víða við í akstursíþróttum og er hvergi nærri hættur þó svo að hann hafi í nógu að snúast í kringum soninn.
Sophie Kumpen, móðir Max, er fyrrum meistari í gókart og því kom það ekkert eins og þruma úr heiðskíru þegar Max sýndi akstursíþróttum áhuga ungur að árum. Sama á við um systurina Victoriu (tvemur árum yngri en Max) sem er líka í kappakstri. Meira um það fólk síðar.
Hvað sem því líður þá hafði Max mætt út á braut með foreldrunum oft og mörgum sinnum áður en hann byrjaði að ganga.
Keppti fyrst sjö ára gamall
Árið 2005 keppti Max í Mini flokki í belgíska gókartinu og burstaði alla krakkana, þá 7 ára gamall. Hann sigraði hverja keppnina eftir aðra það árið og var orðinn Belgíumeistari í gókarti fáeinum dögum eftir 8 ára afmælið.
2006 vann hann hverja einustu keppni sem hann kom nálægt, eða 21 keppni og varð Belgíumeistari annað árið í röð. Þannig hélt það áfram og hér má lesa um þennan magnaða feril hans á barnsaldri.
Meðfylgjandi myndband er frá árinu 2009 og var það tekið í keppni í Hollandi. Það er grjótmagnað að sjá einbeitinguna hjá þessum pjakki (11 ára að verða 12). Öll athygli á nákvæmlega því sem skipti hann máli: Keppa og vinna.
Aðrar umfjallanir
Áttatíu ár eru ansi stór áfangi hjá öllum og þegar Jeep vörumerkið náði þessum stóra 80 ára áfanga árið 2021 var augljóst að sérstök útgáfa nú eða tvær væri...
Volkswagen hefur opinberað nýjan stationbíl undir því sérskennilega heiti „Arteon Shooting Brake“ á teikningu áður en...
Hið sögufræga bílamerki MG sem margir þekkja frá gamalli tíð hefur formlega innreið sína á íslenska bílamarkaðinn síðar í þessum mánuði ...
Nýr Polestar Grand Tourer kostar um 21.443 þús. krónur...