Það var engin flugeldasýning í kringum nýliðann Mick Schumacher á keppnistímabilinu sem var að ljúka í Formúlu 1. En það er ekki þar með sagt að hann sé ekki efnilegur! Síður en svo.

Það geta auðvitað ekki allir verið eins brakandi fyndnir og Kimi Räikkönen né heldur álíka brosmildir og Daniel Ricciardo!

En víkjum þá að hinum unga Mick Schumacher. Hann ekur fyrir Haas og hefur engin stig fengið.

image

Þessi yndislegi og orðljóti maður, liðsstjórinn Gunther Steiner, er svo fyndinn. Ég held að hann viti vel hvað í Mick Schumacher býr þó að stigin hafi ekki hlaðist upp hjá honum á tímabilinu. Skjáskot/Twitter

Besti árangur hans á tímabilinu var þegar hann kláraði tólfti. Hann er, að ég held, á draslbíl. Bílgargani sem ekki stenst samanburð við bíla keppinautanna. Ef það er rétt þá er nú bara býsna gott að klára yfirleitt.

image

Auðvitað skiptir liðsandinn máli og manni sýnist nú svona úr fjarlægð að hinn rússneski Nikita Mazepin sé ekkert sérlega auðveldur í samskiptum. Síðastliðið vor lét sá hvíthærði (Mazepin) þau orð falla að Schumacher nyti forréttinda en hann ekki.

Haas hafði þá gefið það út að ekki stæði til að uppfæra keppnisbíla liðsins né heldur að setja nokkurt púður í þróunarvinnu á tímabilinu til að gera, afsakið, druslurnar að betri keppnistækjum.

Þá hrutu eftirfarandi „gallkorn“ (nýyrði dagsins. Gallkorn eru gallsúr og andstæða gullkorna)  af munni Mazepins í samtalið við vefútgáfu spænska blaðsins Marca: „Ég er nokkuð viss um að ég eigi eftir að keppa í Formúlu 1 í nokkur ár. Það er mikilvægt að halda áfram að læra og þessi barátta er mjög frábrugðin því sem ég hef kynnst hingað til. Þar sem hann [Mick] er ekki hluti af því [Scuderia Young Drivers Academy] þá nýtur hann forréttinda sem ég nýt ekki.“

image

Mick Schumacher hugsi að sjá. Hann ætlar sér að ná góðum árangri á komandi keppnistímabili.

Áfram héldu leiðindin á milli piltanna í sumar og er það nú ekkert til að gera að meira umfjöllunarefni hér en leyfum liðsstjóranum að komast hér að. Hann sagði um þessa pústra piltanna: „Það þarf alltaf tvo til að dansa tangó.“

image

Skjáskot/YouTube

Mick virðist hafa nokkuð þroskað viðhorf til þess sem hann fæst við og má meðal annars sjá það af orðum hans þegar hann leit yfir nýlokið tímabil og sagði: „Á næsta ári mæti ég til keppni og veit þá hverju búast má við og þá get ég strax byrjað að þróa bílinn og uppsetninguna á honum. Ég hef miklar vonir um árangur á komandi ári væntingar mínar eru líka nokkuð miklar,“ sagði Mick.

Varaökumaður fyrir Ferrari

Á næsta tímabili verður reyndar sá munur á, að Mick kemur til með að vera varaökumaður Ferrari-liðsins í 11 keppnum. Varaökumannshlutverkinu skipta þeir Antonio Giovanazzi á milli sín. Komi til þess að Mick þurfi að „hlaupa í skarðið“ hjá Ferrari þá yrði það ökumaðurinn Pietro Fittipaldi sem kæmi í hans stað hjá Haas.

Binotto sagði að það væri í raun mjög merkileg staðreynd hversu stutt hefði verið á milli Micks og þeirra á undan honum. Það færði okkur heim sanninn um að Mick ræður vel við hraðann og höndlar hann vel. Einkum og sér í lagi í ljósi þess að hann keppti á bíl sem var í raun ekki á sama plani og bílar annarra keppenda.

„Á næsta ári mun hann [Mick] keppa á 2022 bílum, sem verða allt öðruvísi en þessir hvað aksturseiginleika snertir. Það mun koma að góðum notum að hafa bílstjóra sem þekkir bílanna sem þá hefur verið lagt,“ sagði Binotto og það hlýtur að vera nokkuð til í þessu. Fyrst Mick Schumacher gat ekið þetta hratt á bíl sem ekki var á „pari“ við bíla hinna keppendanna, þá má nú gera sér í hugarlund að á bíl sem er eins góður og annarra, sé von á góðu frá þessum ökumanni.

En það kemur í ljós!

Hér er myndbandið frá The Race og mæli ég með því:

 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is