Land Rover sýnir næsta Range Rover SV
Pantanabókin verður opnuð snemma árs 2022 fyrir 2023 árgerð SV
Rétt á hælana á hinum nýja Range Rover kemur Range Rover SV, jepplingur frá Land Rover Special Vehicle Operations sem Land Rover USA segir að hafi nægilega mikið af „einstökum hönnunaratriðum og efnisvali“ til að hann bjóði viðskiptavinum „meira svigrúm til að sérsníða en nokkru sinni áður“.
Land Rover opnar pöntunarbækurnar fyrir SV „snemma árs 2022“.
BMW-smíðuð, 523 hestafla, 4,4 lítra tveggja túrbína V-8 vél Range Rover er staðalbúnaður í SV. Range Rover ætlar að tilkynna verðið á SV „einhvern tímann í janúar“.
Framstuðari sem er einstakur á SV, fimm stanga grill og SV-merki eru helstu sératriðin á ytra byrði nýja SV og Land Rover segir að kaupendur geti valið um sjö felguvalkosti.
Það er val á 14 litum til viðbótar við staðlaða litaúrvalið, og SV „Bespoke Match to Sample“ málningarþjónustan (eða sérsniðin til að passsa við sýnishorn) „getur endurtekið hvaða ytri lit sem viðskiptavinur óskar eftir, gefur nánast takmarkalaust svigrúm fyrir sérstöðu,“ segir Land Rover.
Innrétting
Eintóna hálf-anilín leður er staðalbúnaður með SV útsaumi. Land Rover segir að það muni hafa frekari upplýsingar um valfrjálst leður í janúar.
Gírskiptingin, Terrain Response og hljóðstyrkstýringar eru úr keramik – í fyrsta sinn frá Land Rover Special Vehicle Operations - og það eru nokkrar viðartegundir (viðurinn kemur úr sjálfbærri skógrækt) í boði.
Land Rover segir að gerðin með lengra hjólhaf muni bjóða upp á valfrjálsa fjögurra sæta uppsetningu með niðurfellanlegu borði og ísskáp.
(frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Ford er að þróa sportjeppa eða „crossover“ á sérstökum grunni fyrir rafbíla. Frumsýningardagsetningin er líklega 19. nóvember, rétt fyrir opnun bílasýningarinnar í Los Angeles
Hann er flottur, vel búinn og gæti hæglega í augum sumra litið út eins og uppgerð Honda Civic árgerð 1972. Við erum að tala um Honda E Advance...
Hér er gott dæmi um mann sem hefur misskilið eitthvað allverulega en þetta er Joe nokkur Mullins sem á það til að misskilja eitt og annað. Til dæmis misskildi hann hlutverk sitt, hámarkshraða og síðast en ekki síst hraðasektina sem hann fékk í síðasta mánuði.
Volkswagen Group mun smíða rafbíl sem flaggskip fyrir Audi, Porsche, Bentley í Þýskalandi, að því er viðskiptablaðið Handelsblatt í Þýskalandi...