Fjórar bílasölur á nýhönnuðu bílasölusvæði

Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru óðum að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði sem Arkís hefur skipulagt fyrir lóðarhafa milli Hestháls 15 og Krókháls 7 í Reykjavík.

Umhverfisvænar lausnir við hönnun

Félagið K7 ehf. stendur að uppbyggingunni en að því standa eigendur bílaumboðanna BL og Öskju.

Góð staðsetning

Staðsetning svæðisins er sérlega góð með tilliti til aðgengis og staðsetningar fyrir viðskiptavini Öskju og BL. Innakstur til Öskju – notaðra bíla er frá Krókhálsi en þar skammt frá eru höfuðstöðvar Öskju við sömu götu.

image

Þá er innkeyrsla til Bílalands frá Hesthálsi, þar sem Jaguar Land Rover er til húsa skammt frá.

Hindrunarlaust aðgengi er fyrir viðskiptavini að bílasölunum hvort sem ekið er inn frá Hesthálsi eða Krókhálsi, en gert er ráð fyrir að næsta sumar gangi Reykjavíkurborg frá tengivegi milli Krókháls og Hestháls. Þangað til verður hægt að aka um nýja bílasölusvæðið til að komast á milli gatnanna.  

Vaxandi bílasölusvæði

„Þetta nýja bílasölusvæði verður bylting fyrir okkur og styður mjög við vaxandi starfsemi bílasölu í Hálsahverfi.  Fyrir okkur í Öskju er þetta mjög jákvætt enda erum við með aðstöðu fyrir öll okkar merki í næsta nágrenni“, segir Þorgeir Ragnar Pálsson, sölustjóri hjá Öskju.

„Við hjá Bílalandi erum afar ánægð að flytja okkar sölustarfsemi á þetta nýja bílasölusvæði.  Núna erum við mjög sýnileg og í alfaraleið þar sem Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur mætast“ segir Sigurður Ófeigsson framkvæmdastjóri Bílalands.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is