BMW-fólk hrekkur í kút þegar einhver fullyrðir að tiltekin gerð BMW sé betri en önnur. Hvað þá að einhver gerð sem maður hefur varla heyrt minnst á, sé sú fimmta besta af þeim sem framleiddar hafa verið?
Nú treysti ég á að lesendur, sem margir eru vel kunnugir BMW, deili með okkur hvort þeir kannist við gerðina sem þessi ágæti náungi í myndbandinu fjallar um. Fyrir neðan myndbandið er hlekkur á það sem vonandi verður að umræðuþræði um þennan forvitnilega bíl og áhugaverðu staðhæfingu mannsins: Að þetta sé fimmti besti BMW sem framleiddur hefur verið.
Aðrar umfjallanir
Tilkynnt hefur verið um sjö tilnefningar fyrir bíl ársins 2022, virtustu verðlaun heims fyrir nýja bíla...
Þetta er ekki fyrsti bíllinn sem Paul hinn pólski gerir upp. Hann hefur gert upp sjúkrabíla, rallýbíla, löggubíla, strætisvagna, trukka og ég veit ekki hvað og hvað! Meira að segja hefur hann gert ljóta skriðdreka fína.
Fullrafmagnaða útgáfan af nýjum 7 seríu fólksbíl frá BMW mun skila meira en 600 hestöflum, sagði Oliver Zipse forstjóri, og býður upp á meira afl en tengitvinnbílar, bensín- og dísilútgáfur.
Gapandi og jafnvel gólandi fylgdist fólk með svartri C8 Corvettu aka í svakalegu flóði í Flórída. Svo djúpt var vatnið að það náði upp að framrúðu sportarans en svona lagað telst almennt ekki sniðugt. Bara alls ekki.