Það þarf mikið til að ökumenn í Formúlu 1 mæti ekki til keppni sem þeir ætla að taka þátt í. Það hefur gerst nokkrum sinnum í gegnum tíðina og myndband nokkurt fékk mig til að dusta rykið af sögunni af því þegar Juan Manuel Fangio var rænt. 

Mannrán er sannarlega gild skýring á fjarveru frá keppni, og sem betur fer ákaflega sjaldgæf skýring. 

image

Juan Manuel Fangio (1911-1995). Ljósmyndir/Wikipedia

Argentínski formúluökumaðurinn Juan Manuel Fangio fæddist í bænum San José de Balcarce (í Buenos Aires héraði) árið 1911. Hann varð mikill ökukappi og fimmfaldur heimsmeistari í Formúlu 1. 


Fangio varð heimsmeistari fyrst árið 1951, þá 1954, 1955, 1956 og svo 1957.   

Ferill Fangios er magnaður og rúmlega það. Má ég til með að mæla með myndinni A Life of Speed: The Juan Manuel Fangio Story en þetta er heimildarmynd frá árinu 2020 og er hún aðgengileg á Netflix.

Brottnám og uppnám 

23. febrúar 1958, daginn fyrir keppni, ruddust vopnaðir menn inn á hótel nokkurt í borginni. Hotel Lincoln var byggt árið 1926 og var voða flott í marga áratugi en er í dag tveggja stjörnu hótel sem er frægt fyrir það sem gerðist fyrrnefndan febrúardag og hér er greint frá.

image

Hotel Lincoln í Havanaborg var víst virkilega flott hér áður fyrr en skartar tveimur stjörnum í dag og fínasta neon-skilti.

Þessir vopnuðu menn voru ekki í neinni kurteisisheimsókn á Hotel Lincoln. Þetta voru uppreisnarmenn á vegum Fidels Castros og þarna komu þeir og numu á brott heimsmeistarann Fangio. 

Þess vegna skipaði hann svo fyrir að kappaksturinn færi fram á settum degi og ekkert múður. Keppnin fór fram og sigraði Stirling Moss. Fangio var haldið föngnum í 29 klukkustundir og honum sleppt úr haldi rétt eftir að keppni lauk. 

image

Talið er að um 150.000 manns hafi fylgst með keppninni í Havanaborg og stóðu áhorfendur nokkuð nálægt á okkar tíma mælikvarða.

Viðbrögð forsetans (að láta sem ekkert væri og halda keppnina) voru auðvitað þess eðlis að Batista öðlaðist frægð fyrir skandal á heimsmælikvarða. Fidel Castro valtaði svo yfir Batista 11 mánuðum síðar en það er nú allt önnur saga. 

Meðan hinir óku

Byltingarmennirnir vissu að með því að ræna frægasta karlinum í keppninni, heimsmeistaranum sjálfum, fengi heimsbyggðin öll veður af málstað þeirra. Fangio greindi frá því að ekki hafi verið farið illa með hann og mannræningjarnir hafi meira að segja boðið honum að hlusta á útvarpið þar sem keppninni var lýst. 

image

Fangio var boðið að hlusta á lýsingu á kappakstrinum í útvarpi þegar hann var í haldi mannræningjanna.

Honum var færður fyrsta flokks kvöldverður, steik og meðlæti, og svaf Fangio vært á eftir í voða fínni íbúð. Að því er fram kemur í grein nokkurri sem lesa má hér mun Fangio síðar hafa sagt að hann hefði á vissan hátt fundið til með mannræningjunum og að ef það sem uppreisnarmennirnir gerðu „væri gert í góðum tilgangi þá samþykki ég það, sem Argentínumaður,“ og vissulega er það sérstakt, einkum ef menn þekkja ekki til argentínskrar sögu

Eins og fram kom í inngangi þá var það myndband sem kom undirritaðri til að rifja upp söguna af mannráninu. Þetta myndband er ekki það besta en fær þó að fylgja með:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is