- ID.5 er sjötta gerðin á MEB-grunni sem framleidd er í verksmiðjunum í Zwickau í Þýskalandi
Volkswagen tilkynnti opinberlega í gær, föstudaginn 28. janúar, um upphaf framleiðslu á Volkswagen ID.5 gerðinni (og fjórhjóladrifnu ID.5 GTX útgáfunni) í Zwickau í vesturhluta Saxlands, Þýskalandi.
Framleiðsla á Volkswagen ID.5 í Zwickau, Þýskalandi
ID.5 bætist í hóp nokkurra annarra gerða á MEB-grunni sem framleiddar eru í verksmiðjunni:
- Volkswagen ID.3
- Volkswagen ID.4 (og ID.4 GTX)
- Volkswagen ID.5 (og ID.5 GTX) - coupé útgáfa af ID.4
- Audi Q4 e-tron - frændi ID.4
- Audi Q4 Sportback e-tron - Coupe útgáfa af Audi Q4 e-tron
- Cupra Born (frá september 2021) - frændi ID.3
Þetta markar lok umbreytinga Volkswagen á verksmiðju sinni í Zwickau, sem er talin fyrsta stóra verksmiðja nokkurs magnframleiðanda um allan heim til að skipta út allri framleiðslu á ökutækjum með brunahreyfli yfir í rafbíla.
Skiptingin úr 100% brunahreyflum í 100% rafbíla (sex gerðir) tók um 26 mánuði. Möguleg framleiðslugeta sex gerða er 330.000 á ári.
Síðan 2018 hefur um 1,2 milljörðum evra verið varið til að breyta verksmiðjunni.
Samkvæmt fréttatilkynningu framleiddi fyrirtækið árið 2021 um það bil 180.000 einingar í Zwickau og í miklu minni verksmiðju sem framleiddi ID.3 í Dresden (Gläserne Manufaktur Dresden). Markmiðið fyrir árið 2022 er auðvitað að auka framleiðsluna.
Volkswagen ID.5 framleiðsla í Zwickau, Þýskalandi
Árið 2022 mun Volkswagen hefja rafbílaframleiðslu (á MEB-grunni) í þremur verksmiðjum til viðbótar:
- Emden, Þýskalandi: Volkswagen ID.4 (alveg ný gerð sem kemur árið 2023)
- Hannover, Þýskaland: Volkswagen ID. Buzz (sú verksmiðja mun framleiða nokkrar gerðir, þó ekki Porsche)
- Chattanooga, Bandaríkjunum: Volkswagen ID.4 (nú í forframleiðslu)
Samkvæmt framleiðanda er gert ráð fyrir að heildarframleiðslugeta Volkswagen sem vörumerkis á öllum rafbílum muni ná 1,2 milljónum í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína.
(byggt á vef insideevs)
Aðrar umfjallanir
Í nýlegum fréttum sem ekki koma á mörgum á óvart, fengu tveir bílar Volvo mjög háar einkunnir frá Rannsóknarstofnun öryggis á þjóðvegum (Insurance Institute for Highway Safety).
Ford er reyndar ekki að framleiða radrfina Bronco bíla – að minnsta kosti ekki enn. Hins vegar er möguleiki á að ná sér í rafdrifið tryllitæki í...
Á kynningu á IAA Transportation í Þýskalandi í vikunni, hefur kínverski rafbílaframleiðandinn Build Your Dreams (BYD) deilt nýrri rafbílatækni...
Renault 4, rafbíll sem sækir útlit til gamalla tíma, mun leiða kynningar Renault Group á bílasýningunni í París 2022.