Alfa Romeo Tonale frumsýndur

    • Alfa Romeo Tonale mun keppa við BMW X1 í uppsveiflu í þessum markaðshluta
    • Fyrsta nýja gerð Stellantis vörumerkisins síðan 2016

MÍLANO-Alfa Romeo stefnir að samkeppni við BMW X1 með Tonale; litlum crossover, nýjum þátttakanda í einum vinsælasta bílaflokki Evrópu sem gæti meira en tvöfaldað sölu vörumerkisins.

image

Tonale er með hönnunarþætti sem minna á sögulega Alfa Romeo, eins og sveigjuna fyrir neðan mittislínuna; álfelur með útliti sem minna á „skífurnar á gömlu símunum“, innblásnar af 33 Stradale; og mælaborði sem minnir á sjónauka.

Tonale er smíðaður á FCA Small Wide undirvagninum, sem einnig er undir Jeep Compass og Renegade. Verður hann smíðaður í verksmiðju Stellantis í Pomigliano á Suður-Ítalíu. Sala hefst í júní.

image

Alfa Romeo er að stíga sín fyrstu skref í átt að rafvæðingu með Tonale, sem verður fáanlegur með tengitvinndrifrás sem og með 48 volta hybrid aflrás sem gerir bílnum kleift að ferðast stuttar vegalengdir á rafmagni eingöngu.

image

Tonale mun einnig hafa nýtt upplýsinga- og afþreyingarkerfi sem byggir á Alexa raddaðstoð Amazon og loggskrá fyrir ökutæki, byggða á NFT-tækni (non-fungible token) sem Alfa Romeo segir að sé í fararbroddi á heimsvísu.

BMW er viðmið

Frá stofnun Stellantis hefur Alfa Romeo notað BMW sem viðmið, sagði forstjóri Alfa Romeo, Jean-Philippe Imparato, við Automotive News Europe. Helsti keppinautur Tonale er BMW X1, sem er einnig með bensín, dísil og tengitvinn aflrás. Á síðasta ári seldi BMW 90.330 eintök í Evrópu, samkvæmt Dataforce.

„Ég vildi vera viss um að Tonale gæðin væru fullkomin frá fyrsta degi, en líka að við gætum boðið upp á háþróaða tengingu og notendaviðmót,“ sagði Imparato.

Upplýsinga- og afþreyingarkerfið er byggt á sérhönnuðu Android Auto stýrikerfi sem kemur með 4G tengingu og þráðlausum uppfærslum. Tonale er staðalbúinn með 10,25 tommu miðlægum snertiskjá og Amazon Alexa raddgreiningu.

Í mælaborðinu sjálfu er 12,3 tommu sérhannaður stafrænn skjár.

Tonale er með SAE Level 2 ökumannsaðstoðarkerfi, þar á meðal aðlagandi hraðastilli, akreinarmiðjustillingu, sjálfvirka neyðarhemlun og skynjara fyrir blindpunkta.

image

Sex mánaða alþjóðleg útfærsla

Opnað verður fyrir pantanir á Tonale í apríl með sérstakri útgáfu. Afhendingar hefjast í júní á útgáfu með 1,5 lítra bensínvél, 48 volta tvinnkerfi og afköstum sem eru 128 hestöfl. Sama aflrás kom nýlega á markað í Jeep Renegade og Compass.

Í lok þessa árs mun Tonale koma á markað í Bandaríkjunum þar sem hann verður með sérstaka 2,0 lítra bensínvél, 252 hestöfl, níu gíra sjálfskiptingu og fjórhjóladrifi.

Imparato sagði að aðrir stórir markaðir, eins og Kína og Brasilía, „geta fengið bílinn ef þeir vilja hann." Hann sagði að Alfa Romeo vilji ekki keppa í verði og þynna út verðmæti vörumerkisins, þannig að aðrir markaðir gætu aðeins fengið Tonale ef þeir geta sýnt fram á traust viðskipti.

Dísilútgáfa verður fáanleg í sumum Evrópulöndum, þar á meðal Ítalíu, með 1,6 lítra aflgjafa sem skilar 128 hö.

image

Stafræn gögn gögn gætu aukið gildi

Framleiðsluútgáfan af Tonale er ekki verulega frábrugðin hugmyndabílnum, þar sem breytingar eru að mestu bundnar við kröfur eftirlitsaðila. Meðal breytinga eru endurskoðaður framendi og hefðbundin hurðahandföng bæði að framan og aftan, auk stærri afturrúðu.

Með samþykki viðskiptavinarins mun NFT skrá gögn Tonale og búa til vottorð sem hægt er að nota sem tryggingu fyrir því að bílnum hafi verið haldið við á réttan hátt.

Alfa Romeo býst við að raunveruleg gögn sem eru í NFT, ekki aðeins fyrirhugað viðhald heldur einnig upplýsingar um allar uppfærslur sem sóttar hafa verið fyrir ökutækið, vegalengdina sem því hefur verið ekið og hvernig því var ekið gætu aukið gildi þess.

image
image
image

Heimildir birgja sögðu Automotive News Europe að Alfa Rome áætli framleiðslu á um 60.000 Tonale-bílum á heilu ári; magn sem gæti tvöfaldað heimssölu vörumerkisins, sem var um 63.000 eintök árið 2020.

(frétt á vef Automotive News Europe)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is