Bleiki fíllinn í stofunni: VXR takkinn í „Östrunni“. Já, það má varla tala um hann – hvað þá ýta á hann! Vauxhall/Opel Astra var takkinn sem lét þennan bíl skipta um ham. Úr hefðbundnu ökutæki í grimman bíl sem reif bara kjaft.
Best að segja sem fæst um fólkið í bílnum sem maður þekkir ekki baun en af einhverjum furðulefum ástæðum varð mér þó hugsað til mannsins sem setti múrstein undir bensíngjöfina í bíl eiginkonunnar… Hún gaf alla vega ekki í „botn“ eftir það.
Annað sem þér gæti þótt spaugilegt í morgunsárið:
Aðrar umfjallanir
Sebastian Vettel, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, tilkynnti í morgun að hann muni hætta eftir keppnistímabilið. Vettel hefur keppt í Formúlu 1 í 15 ár og ekur fyrir Aston Martin. Meira um þennan magnaða ökumann síðar en hér er myndband sem Aston Martin birti áðan.
Volkswagen Group mun fara fram úr Tesla og verða stærsti framleiðandi rafknúinna ökutækja á næstu fimm árum þar sem mikil fjárfesting VW...
Í frétt frá Tesla á miðvikudag 4. desember að Model X sportjeppinn þeirra hafi hlotið fimm stjörnu mat hjá European New...
Hekla blés til veislu í sýningarsal Mitsubishi á Laugaveginum í dag. Heklumenn sýndu þar splunkunýjan og talsvert mikið uppfærðan...