Grjótharður Mitsubishi L200 frumsýndur hjá Heklu í dag
Hekla blés til veislu í sýningarsal Mitsubishi á Laugaveginum í dag. Heklumenn sýndu þar splunkunýjan og talsvert mikið uppfærðan Mitsubishi L200. L200 hefur átt mikilla vinsælda að fagna á bílamarkaði hérlendis um árabil.
Öflugur L200 með sérlega flottum orange lit.
Bíllinn á sér 40 ára sögu sem vinsæll vinnuþjarkur hefur nú fengið kröftugra útlit ásamt því að státa af uppfærðu fjórhjóladrifi.
Nýtt pallhús og velja má um plast- eða ál skúffur á pall.
Mitsubishi L200 hefur svo sannarlega fengið kröftugra útlit.
Nýja drifið býður upp á Off Road 4WD mode og Hill Descent Control - það þýðir að ökumaður getur valið um akstursstillingar sem henta fullkomlega hverskyns yfirferð. Bremsukerfi L200 ásamt nýrri fjöðrun og styrktum undirvagni gera Mitsubishi L200 að mjög eftirsóknarverðum valkosti á pallbílamarkaðinum í dag.
Við höfum þegar óskað eftir að fá að reynsluaka þessum nýja L200 og vonum að umfjöllun um bílinn birtist hér á vefnum fyrir mánaðarmót.
Aðrar umfjallanir
Þegar Íslendingar fara til Ameríku getur ýmislegt gerst. Einkum og sér í lagi þegar þeir taka bílana sína með sér og bílarnir eru torfærubílar. Já, lesendur góðir, ég á að sjálfsögðu við íslenska torfæruökumenn sem keppa í torfærunni í Bikini Bottoms.
Nissan 370 Z Twin túrbó (rúm 700 hö) og Tesla Model S Plaid (rúm 1000 hö) fóru í spyrnu. Teslan hafði betur í þeirri fyrri en svo… Já, framhaldið er hér:
Nissan og Chris Ramsey hjá fyrirtækinu „Plug In Adventures“ eru að skipuleggja ansi magnaða ferð á næsta ári. Ramsey mun keyra 2023 árgerð af rafbílnum Nissan Ariya frá norðurpólnum til suðurpólsins.
Við sögðum frá því að Porsche myndi brátt stækka Taycan línuna með nýju, hagnýtara afbrigði Cross Turismo, núna sem stationbíll...