Það eru heldur betur fréttir þegar stórstjörnur sjást á fínum bílum, er það ekki annars? Ehemm…
Ljósmynd/Mercedes-Benz
Leikarinn er ægilega frægur. Fylgjendur hans á Instagram eru rúmlega 33 milljónir talsins ef það segir eitthvað en okkur er nú slétt sama um svona lagað. Aðalatriðið er að maðurinn kann að meta góð ökutæki.
Þetta lítur allt býsna vel út! Mynd/Mercedes-Benz
Látið myndina fyrir neðan þó ekki blekkja ykkur. Hann er á þessum svarta – ekki gula og svarta apparatinu!
Svo veit maður ekkert hvort Sahid Kapoor aki sjálfur yfirleitt. Kannski er hann ekki með bílpróf… Alla vega virðist hann vera farþegi í meðfylgjandi myndbandi, blessaður karlinn.
Bíllinn, Maybach S580, á víst ekki að koma á indverska bílamarkaðinn fyrr en 3. mars en það virðist ekkert trufla leikarann sem er sannarlega á Maybach S580 í myndbandinu. Númera„plöturnar“ viðast þó eitthvert bráðabirgðapjátur. Einhverjum datt nú í hug að Kapoor væri bara að reynsluaka bílnum en það væri sérstakt að reynsluaka án þess að aka sjálfur.
Aðrar umfjallanir
ÍSBAND umboðsaðili JEEP og RAM á Íslandi býður til stórglæsilegrar jeppa- og pallbílasýningar laugardaginn 6. júní...
Margir hafa beðið eftir því að nýi Grenadier-jeppinn, sem byggir mikið á gamla góða Land Rover, og núna er orðið ljóst að það styttist í það...
Það getur vel verið að þeir séu fljótir að flytja búslóðir fyrir fólk. En þeir eru líka fljótir að beygla bíla. Þessi ekur fyrir Quick Move í Glasgow.
Flestir sem komast í úrslit komu frá Ameríku og Suður-Kóreu, með einn japanskan í úrslitum...