Bílaflutningaskipið og óheillakrákan með því lukkulega nafni Felicity Ace er nú á hafsbotni ásamt 4000 nýjum bílum. Það er á um 3000 metra dýpi 220 sjómílur frá ströndum Azoreyja eftir tveggja vikna vandræði á hafi úti.

image

Ljósmynd/Portúgalska strandgæslan

Áhafnarmeðlimirnir 22 gátu fátt ef nokkuð gert til að hemja bálið um borð en portúgölsku strandgæslunni tókst að bjarga öllum áhafnarmeðlimum og voru þeir ómeiddir. Þá var skipið um 90 sjómílur suðvestur af Azoreyjum.

Í rúma viku rak stjórnlaust skipið töluvert og á meðan logaði eldurinn. Hátt í 4000 nýir bílar voru um borð og lithíumrafhlöður bílanna viðhéldu bálinu.

image

Ljósmynd/Portúgalska strandgæslan

Þegar engan reyk frá skipinu fóru björgunarlið um borð í því augnamiði að gera það klárt í tog. Þetta var síðastliðinn föstudag.

image

Taug var svo komið úr björgunarskipinu Bear yfir í Felicity Ace, sem var að mati sérfræðinga nokkuð stöðugt á haffletinum. Stóð til að draga það á öruggt svæði sem er um 60 sjómílur suðaustur af eyjunni Faial þar sem sérfróðir ætluðu að fara um borð. Því næst átti að freista þess að bjarga því sem bjargað yrði.

Björn (Bear) var ekki einn á ferð því honum fylgdu dráttarbátarnir ALP Guard og Dian Kingdom, auk risabjörörgunarbáknsins V.B. Hispanic sem er sérútbúið skip með  slökkvibúnaði.

Áður en bátarnir komust á fyrrnefnt svæði tók Felicity Ace að hallast verulega á stjórnborða og klukkan 9:30 að staðartíma í gærmorgun (1. mars) var skipið sokkið og með því bílarnir sem flestir voru virkilega fágætir og dýrir.

image

Þetta er auðvitað algjör sorgarsaga fyrir umhverfið, kaupendur, bílaframleiðendur og hvernig sem á það er litið er allt vont í tengslum við þetta en vandlega er nú fylgst með á strandstað hvort olíu verði vart innan um brak úr skipinu. Vaktina skipa þau skip sem fyrr voru nefnd.

image

Á meðal bíla um borð má nefna Lamborghini Urus, Aventador (síðustu eintökin sem framleidd voru) og Huracan (alls 85 bílar frá Lamborghini), Volkswagen Golf R, GTI, Arteon, ID.4 (alls um 500 VW), Bentley (189 bílar), Audi (1.900 bílar) og Porsche (1.100 bílar), þar á meðal nokkrar sérútgáfur, t.d. af 911 Turbo S (metinn á 272.000 dollara) og Cayenne Turbo GT (metinn á 193.000 dollara).

image

Tjónið hleypur á einhverjum tugum milljarða íslenskra króna en of snemmt er að segja til um hvert heildartjónið er. VW hefur þó greint frá því að tjón bíla frá þeim sem tryggðir voru nemi 155 milljónum dollara eða um 19 milljörðum króna. Bloomberg hefur haldið því fram að heildarverðmæti bílanna um borð sé um 400 milljónir dollara.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.  

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is