Toyota Yaris með hæstu einkunn í endurskoðuðu árekstarprófi NCAP
- Yaris er fyrsti bíllinn til að takast á við uppfærðar prófunarreglur og sá fyrsti til að hljóta fimm stjörnur í einkunn samkvæmt nýja kerfinu
Toyota Yaris tvinnbíll (hybrid) 2020 – hlaut fimm stjörnur í nýju árekstarprófi NCAP.
Nýi Toyota Yaris hefur fengið fimm stjörnur í nýjustu umferð árekstrarprófa Euro NCAP og setti viðmiðið fyrir öryggi lítilla fjölskyldubíla frá því að árekstraprófunarstofan uppfærði prófunarreglur sínar.
Yaris, sem var prófaður í fimm dyra tvinnbílsútgáfu, er fyrsti bíllinn til að takast á við nýja NCAP kerfið sem er með yfirfarið árekstrarpróf að framan. Aðrar breytingar fela í sér kynningu á mótvægisaðgerð vegna meiðsla í höggi ytra megin og hreyfanlegt, aflaganlegt hindrunarpróf.
Með hæstu einkunn
„Til hamingju Toyota með hæstu einkunn fyrir Yaris,“ sagði framkvæmdastjóri Euro NCAP, Michiel van Ratingen. „Þetta hefur verið erfitt ár fyrir alla sem málið varðar og ég er þakklátur rannsóknarstofum og starfsmönnum Euro NCAP, sem hafa unnið hörðum höndum við að tryggja öryggi á meðan þeir eru öruggir.“
Þrátt fyrir að Yaris sé eini bíllinn sem tekst á við endurskoðaða prófið hingað til voru tveir aðrir bílar prófaðir í samræmi við reglurnar frá 2019. Þetta voru nýi Renault Clio E-Tech tvinnbíllinn, sem jafnaði útkomu venjulega Clio með fimm stjörnum, og Audi E-tron Sportback, sem einnig hlaut fulla stjörnugjöf.
(frétt á vef Autocar)
Aðrar umfjallanir
Fyrirtækið sem rekur Pelaexpo-sýningarskálana í Genf vill setja upp bílasýningu árið 2021 þrátt fyrir að skipuleggjendur hafi hætt við viðburðinn...
Það er kannski ekki fallegt að hefja umfjöllun með svo vafasari fullyrðingu: Að til sé Porsche sem flestir ættu að hafa ráð á að kaupa...
Citroën er að undirbúa fyrsta nýja stóra fólksbílinn sinn til sölu á alþjóðlegum markaði í átta ár þar sem vörumerkið leitast við að koma með arftaka C6 sem flaggskip...
5-serían með breyttu útliti er enn með fjögurra strokka 530i, sex strokka 540i, V-8 M550i og blendings/hybrid 530e gerðir...