Ef einhver heldur því fram að Þjóðverjar fari leynt með húmorinn þá er tímabært að taka þá skoðun til endurskoðunar. Hér er brakandi nýtt og ferskt myndband þar sem T-Class er frumsýndur og þetta er svakalega hressandi svo ekki sé meira sagt!
Í fyrsta lagi er ótrúlega gaman að sjá fólkið sem hannaði bílinn lýsa því sem þeim finnst frábært við hann og það gera þau á sinni þýsk-ensku sem er dásemd. Auðvitað hefði verið hægt að fá enskan eða amerískan leikara til að blaðra þetta en í staðinn þá er þetta ektafínt og mannlegt.
Bara venjulegt fólk í venjulegum fötum að segja frá vinnunni sinni og bílnum sem þau bjuggu til í vinnunni.
Svo eru það innskotin sem gera þetta virklega hressandi. Mikið gott hjá Mercedes og vonandi er bíllinn líka fínn. Það eru einhverjar líkur á því.
Annað óvenjulegt og nýtt:
Aðrar umfjallanir
Nissan er að skoða það með samstarfsaðilanum Renault hvort það borgi sig að búa til arftaka sem tæki við af núverandi Nissan Micra...
Samkvæmt frétt frá Reuters verður framleiðsla á rafmótorum aukinn til muna í stærstu vélaverksmiðju Stellantis, því fyrirtækið sagði á miðvikudag að það muni...
Samkvæmt mörgum vefsíðum um bíla þá eru Jeep Wagoneer og Grand Wagoneer að koma aftur. Birst hafa myndir af bílum í reynsluakstri...