Polestar 2 fær sjálfbærni, tækni og hönnunaruppfærslur

    • Koltvísýringsspor minnkað með innleiðingu á endurnýjanlegri orku í öflun og framleiðslu álíhluta
    • Aukin rafhlöðurýmd og hraðari hleðsla fyrir útfærslu með staðal drægni og einföldum mótor
    • Nýir litir, felguhönnun og innréttingar meðal hönnunar- og búnaðaruppfærslna

Polestar 2 fær uppfæslur sem draga úr umhverfisáhrifum og auka gagnsæi, ásamt hönnunar- og búnaðaruppfærslum sem breyta ásýnd og auka hagkvæmni.

Þetta eru mikilvægar viðbætur við hvernig við getum bætt bíla á lífsferlinum – ekki bara með virkni- og hönnunaruppfærslum heldur einnig með áherslu á sjálfbærni og lækkun kolefnisspors.“

Samstarf Polestar við Circulor felur nú í sér rekjanleika blokkar gljásteins, auk kóbalts sem þegar er rekjanlegt í Polestar 2 rafhlöðum. Bálkakeðju tæknin gerir Polestar kleift að rekja áhættusteinefni frá efnisuppsprettu til fullunnar vöru.

image

Rafhlaðan í Polestar 2 með einföldum mótor með staðaldrægni („Standard range Single motor“) fær endurbætta selluvirkni sem eykur afkastagetu (nú 69 kWh).

Þetta leiðir til aukinnar drægni (nú allt að 474 km. skv. WLTP), hraðari hleðslu (nú allt að 130 kW DC) og meiri afköst mótorsins (170 kW).

Álskúffan utan um rafhlöðuna fyrir allar útfærslur er nú með CO2-ígildi sem minnkar um 750 kg. á bíl, vegna ákvörðunar um að kaupa eingöngu ál fyrir þennan íhlut frá álverum sem nota endurnýjanlega orku.

Felgur úr lágkolefnaáli

„Fyrsta tilraunaverkefnið hefur verið sett á laggirnar þar sem álið í felgunum er skipt út fyrir lágkolefnisál sem er framleitt með endurnýjanlegri orku. Við gerum ráð fyrir að þetta skili 600 kg CO2 í lækkun á bíl fyrir Polestar 2 á seinni hluta ársins.

Samhliða endurbótum á áli í rafhlöðuskúffunni gerum við ráð fyrir að sjá heildarlækkun upp á um 1.350 kg á bíl.“

Uppfærslur í hönnun skapa breytta ásýnd á öllum útfærslum Polestar 2. Stefna Polestar í innréttingaefnum er að auka notkun á endurnýjanlegum, endurvinnanlegum og endurunnum efnum og bjóða alltaf upp á vegan áklæðakost.

Í Polestar 2 er nú fáanlegt endurbætt Nappa-leðuráklæði með meiri áherslu á sjálfbærni.

„Við krefjumst þess að allt leður sem notað er í Polestar vörur verði að uppfylla ströngustu staðla um dýravelferð og fimmfrelsið*, auk þess að vera fullkomlega rekjanlegt og krómlaust,“ heldur Fredrika Klarén áfram. "Nýr leðurbirgir, Bridge of Weir, uppfyllir kröfur okkar**."

image

Hönnunar- og eiginleikauppfærslur innifela:

    • Nýir litir: Space (kemur í stað Void) og Jupiter (kemur í stað Moon)
    • Magnesíum er nú litur án kostnaðar
    • Ný hönnun á standard 19 tommu felgunum og einnig á 20 tommu valfrjálsu felgunum
    • Nýr sink litur fyrir loftræst Nappa leðuráklæði (kemur í stað Barley), fáanlegt með nýju Light Ash deco (kemur í stað viðaráferðar)
    • Færanleg sólhlíf fyrir panorama glerþakið (einnig fáanlegt sem Polestar Extras aukahlutur frá miðjum júní 2022 fyrir alla Polestar 2 með glerþaki)
    • Hugbúnaðaruppfærsla til að auka afköst í 350 kW og 680 Nm er nú innifalin í Performance pakkanum í Evrópu
    • Varmadælan (innifalin í Plus pakka) er með bætt kjörhitasvið, nú milli -7°C og 25°C
    • Háþróuð sía í farþegarými og uppfærður svifryksskynjari með nýju appi í bílnum sem mælir loftgæði útlofts inn í farþegarými (Plus pakki)

Uppfærðan Polestar 2 er nú hægt að panta á Polestar.com og búist er við afhendingu í september 2022.

(byggt á fréttatilkynningu frá Polestar / Brimborg)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is