Dustin Hoffman hefði orðið góður bílasali, en sem betur fer varð hann leikari. Býsna góður meira að segja. Það er skemmtileg staðreynd að stuttu áður en Hoffman varð þekktur kvikmyndaleikari lék hann í auglýsingu fyrir Volkswagen.
Árið 1966, þá 29 ára gamall, fór Hoffman á kostum í auglýsingu fyrir VW Type 3.
Auglýsing myndarinnar The Graduate í lok árs 1967.
Ári síðar, 1967, sló Hoffman í gegn í myndinni The Graduate og framhaldið þekkja margir. Volkswagen fékk Hoffman ekki í fleiri auglýsingar en bíllinn, sem kom fyrst á markað 1961, var framleiddur til 1973.
Hér er auglýsingin:
Aðrir leiknir bílasalar:
Aðrar umfjallanir
Áttunda kynslóð Volkswagen GTI verður ein af stjörnum komandi bílasýningar í Genf...
Það er gaman að greina frá þeirri húmorísku staðreynd að það sem flestir lásu í janúarmánuði á Bílabloggi var einmitt greinin um efnið sem Facebook hafnaði 2021. Þess vegna prófuðum við að magna færsluna með öllum „stórvarasömu“ greinunum og „voilà“: Hún flaug í gegn!
Nú er komið að því að þekkja bílinn á svipnum. Hvaða bíll er á myndinni?
Það er óhætt að segja að Suðureyri við Súgandafjörð hafi tekið stakkaskiptum á örfáum dögum. Ekki einungis hefur „íbúatalan“ margfaldast síðustu...