Í apríl árið 1969 var greint frá stórmerkilegum eltingarleik: Þrír lögreglubílar eltu Trabant í Vesturbænum og það í heilar tólf mínútur. „Er næsta furðulegt að manninum skuli hafa tekizt að aka þessari bíltegund á slíkum hraða, en á eftir sagði hann að aðrir gætu ekki leikið það eftir sér.“
Lítið fór fyrir skynseminni hjá ökumanninum sem ók greitt um Vesturbæinn á sínum Trabba. Ljósmynd/Malín Brand
Fréttin birtist í Tímanum þann 22. apríl 1969 og má segja að ökumanninum, sem braut lögin rækilega, hafi nánast verið gert hátt undir höfði í fréttinni. Af hverju? Jú, því ökufanturinn, eins og hann var kallaður, „ók Trabantbíl á um og yfir 100 km hraða á klukkustund,“ um íbúðargötur Vesturbæjar.
Þótti blaðamanninum þetta hið merkilegasta afrek. Að einhverjum tækist að koma bíl af einmitt þessari gerð svona hratt.
Ók eftir götum og gangstéttum
Það er sannarlega áhugavert en annað þótti þeim líka áhugavert er fréttina ritaði: „Hitt er ekki síður furðulegt að slys skyldu ekki verða á manninum og öðrum vegfarendum á þeim götum og gangstéttum, sem hann lagði leið sína um.“
Þetta var skömmu eftir hádegi á mánudegi og ljóst að mikil hætta hefur stafað af ökumanninum á plastbílnum. Sem fyrr segir stóð eltingarleikurinn í tólf mínútur en þá „tókst lögreglu að króa Trabantinn af,“ eins og þar sagði.
Vildi losna við fyrrverandi
Raunar hófst eltingarleikurinn við heimili fyrrverandi konu mannsins en hún hafði samband við lögreglu þegar maðurinn kom og hafði í hótunum við hana. Ber konan að maðurinn hafi jafnvel hótað henni lífláti og er ekkert um heimsóknir hans gefið,“ sagði í fréttinni. Það kemur ekki á óvart að konunni hafi verið illa við slíkar heimsóknir.
Kallað á liðsauka
Þegar þessi eini bíll gat ekki stoppað Trabba komu tveir lögreglubílar til viðbótar og sem fyrr segir var þetta mikill hasar.
„Voru aðrir vegfarendur á götum þeim sem ekið var um og ekkert síður á gangstéttum í bráðri lífshættu, en Trabantinn fór oft vinkilbeygjur á 75 km hraða.“
Á Kaplaskjólsvegi gafst ökumaðurinn upp (frekar en Trabantinn) og við yfirheyrslur greindi maðurinn frá því að hann hafi lagt á flótta „því hann hafi ekki viljað eiga handtöku á hættu, þar sem hann stóð á tröppunum, því hann hefur verið handtekinn áður við svipaðar kringumstæður,“ sagði í þessari sérstöku frétt í Tímanum í apríl árið 1969.
Fleira tengt Trabant:
Aðrar umfjallanir
Salon de l'Auto í Brussel fagnaði 100 árum með því að vera alþjóðlegri og fjölbreyttari en venjulega...
Nýtt öryggispróf sem metur hversu vel kerfi eins og aðlögun hraðastýringar og akreinaaðstoð, sem miða að því að veita ökumönnum meiri upplýsingar á markaði með mismunandi...
Samkvæmt frétt á vef electrek.co er VW að undirbúa nokkrar góðar endurbætur á MEB grunninum sínum, sem munu leiða til betri frammistöðu...
Volkswagen stefnir að því að nota bílasýninguna í Frankfurt til að opinberlega afhjúpa nýtt lógó, sem þegar hefur sést á frumgerð bíla sem verið er að prófa.