Peugeot mun kynna 408 coupe-crossover í lok júní
PARIS - Peugeot mun auka framboð sitt í flokki minni bíla með kynningu á 408, crossover í Coupe-stíl sem verður sýndur í lok júní.
408 mun sameinast 308 og 3008 í Peugeot línunni. Bílinn var kynntur aðeins með mynd af grillinu.
Coupe-crossover útlitið nýtur vinsælda meðal merkja á fjöldamarkaði eftir að hafa verið kynntur í Evrópu á stærri úrvalsbílum eins og BMW X6 og Mercedes-Benz GLE.
Núverandi almennar gerðir eru Renault Arkana, Volkswagen ID5 EV og Toyota CH-R, sem eru flokkaðar sem sportjeppar eða crossover.
Hönnuðir og skipuleggjendur vöruframboðs segja að stíllinn henti sérlega vel fyrir rafbíla, því hann sé loftaflfræðilegri en hefðbundnir jeppar, sem geti hjálpað til við að bæta drægni.
Svona sér bílavefurinn Carscoops fyrir sér að nýi 408 frá Peugeot muni líta út.
Þó að þessar gerir séu ekki flokkaðar sem jeppar eða crossovers, hafa nokkrar gerðir bíltegunda í litlum stærðum tekið upp svipaðar útfærslur, með hærri sætum og hjólbogum í jeppastíl. Meðal þeirra eru Citroen C4, DS 4 og Renault Megane E-Tech Electric.
408 verður líklega byggður á nýjustu útgáfunni af EMP2 grunninum, sem gerir ráð fyrir bensíni, dísel, tengitvinnbíl og fullrafdrifinni aflrás frá og með 2023. Aðrar gerðir Peugeot á þessum grunni eru 308 og 3008.
Sérstaklega hafa CH-R og Arkana verið vel heppnaðar frá því að þær komu á markað. CH-R hefur reglulega selt meira en 100.000 eintök síðan hann kom á markað árið 2017, og Arkanan sem kemur frá Suður-Kóreu seldist í fleiri eintökum á þessu ári en Kadjar-jeppinn, sem hefur hefðbundnara útlit.
(frétt á vef Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Fáir bílar hafa sennilega breytt eins miklu fyrir eins marga og hinn eini sanni „Jeppi“ þegar hann kom fram á sjónarsviðið í byrjun...
Tesla opnaði nýlega eina af Supercharger stöðvum sínum í Hollandi fyrir aðrar rafbílagerðir en Tesla. Hingað til er ekki annað...
Það bíða margir spenntir eftir komu Ford Bronco 2021 og þó að það sé hægt núna að panta Bronco verðum við að bíða til næsta árs til að...
Porsche býr sig undir að setja á markað uppfærða útgáfu af 992-kynslóð 911. Bíllinn á að koma á markað árið 2023.