Polestar frumsýnir sinn fyrsta rafknúna jeppa, byggður á afburða aksturseiginleikum, Polestar 3, í október 2022
Kynning bílsins markar sókn Polestar inn á einn ábatasamasta- og hraðvaxnasta markaðshluta bílamarkaðarins, sérstaklega í Bandaríkjunum.
Polestar 3 mun með tímanum bjóða upp á sjálfkeyrandi þjóðvegaakstur knúinn af öflugasta LiDAR skynjaranum frá Luminar og miðlægu NVIDIA tölvuafli.
Með þessari yfirlýsingu um heimsfrumsýningu fylgir nýtt myndband og fyrsta opinbera myndin af bílnum.
Viðskiptavinir geta lagt inn pöntun á Polestar 3 á frumsýningarmörkuðum frá og með frumsýningardeginum. Gert er ráð fyrir að framleiðsla hefjist snemma árs 2023 og verður Polestar 3 framleiddur í Bandaríkjunum og Kína.
„Með þessum bíl innleiðum við „sport“ aftur í jeppann, trú stefnu okkar um afburða aksturseiginleika.“
Thomas Ingenlath bætir við: "Þetta er stór áfangi fyrir fyrirtækið okkar, eykur vaxtarhraðann og færir okkur í átt að næsta áfanga."
Polestar stefnir að því að setja nýjan bíl á markað á hverju ári næstu þrjú árin, frá og með Polestar 3, og stefnir á að fjölga alþjóðlegum mörkuðum sem það starfar á í 30 fyrir árslok 2023. Þetta styður áætlanir Polestar um að tífalda sölu á heimsvísu frá u.þ.b 29.000 bílum árið 2021 í u.þ.b 290.000 bíla í lok árs 2025.
Aðrar umfjallanir
Mjög flott en ekki alveg nýtt myndband þar sem brunað er í gegnum 70 ára sögu Porsche sportbílsins á rúmum tveimur mínútum. Það er mikil kúnst og tókst þetta nógu vel til að ástæða sé að birta á… 73ja ára afmælinu.
Fyrir viku síðan ók undirrituð 1981 árgerð af DeLorean á Norður-Írlandi. Stoppaði ásamt syni við hliðið á upprunalegu DeLorean verksmiðjunni í Dunmurry. Í gær birtist svo æði merkileg frétt um þessa merkilegu tegund sem DeLorean er. Tveir slíkir hafa verið í áratugi þar sem tíminn hefur staðið í stað.
Þetta litla kvikindi kemst upp í 130 km/klst og hefur verið líkt við Teslu hvað tækni snertir en verðlagningin þykir nær Ford Fiesta. Útlitslega er hann þó í líkingu við eitthvað löngu grafið og gleymt.
Erfiðleikar við sölu á minnstu bílunum með hagnaði mun líklega þvinga fleiri bílaframleiðendur til að skera niður gerðir í þessum hluta markaðarins á næstu fimm árum.