Í bíltúr í gær um Hafnarfjörðinn, kom ég auga á ljómandi fallega bíla fyrir framan RAG í Hellluhrauni. Kom í ljós að þetta eru kínverskir rafbílar af gerðinni DFSK SERES 3 og er Rafn Arnar Guðjónsson umboðsaðilinn á Íslandi.
Undirrituð sló á þráðinn til Rafns eftir að hafa ekið nokkra hringi og brotið heilann um það hvernig í ósköpunum ný bíltegund hefði getað farið framhjá mér.
Önnur pöntun klár
Þetta var ekki eins alvarleg yfirsjón af minni hálfu og ég taldi fyrst, því bílarnir komu í Hafnarfjörðinn nokkrum klukkustundum áður og í gærmorgun birti RAG myndir af bílunum á Facebook-síðu sinni.
Rafn sagði að áhuginn á nýja bílnum væri það mikill að hann hafi gengið frá annarri pöntun á SERES 3 í morgun og ljóst að landsmenn fagna viðbótinni við rafbílaúrvalið sem verður stöðugt fjölbreyttara.
Drægni SERES 3 er 420 kílómetrar og kostar bíllinn 5.900.000 krónur. Fjórhjóladrifsútgáfa er væntanleg á næsta ári.
Bíllinn mun vera hinn glæsilegasti og vel búinn í alla staði. Drægnin er yfir 400 kílómetrar.
Við gerum bílnum betur skil von bráðar hér á Bílabloggi en meðfylgjandi myndir eru birtar með leyfi RAG. Nánari upplýsingar um búnað er að finna hér og á Facebooksíðu RAG.
Aðrar umfjallanir
Á þessu ári mun M-deild BMW sýna sjálfstæða gerð sem hluta af vegferð sinni í átt að rafvæðingu. Nýi bíllinn, kallaður BMW XM...
Gamall Ford Sierra? Tjah, já svona upp að einhverju marki en ekki er allt sem sýnist. Það var venjuleg 1.6 lítra vél í honum en ekki lengur. M50B20, segir það eitthvað? En Holset HX40?
Hér er hádramatísk frásögn bíleiganda úr umferðinni í Reykjavík vorið 1967. Bíleiganda var ekki skemmt þegar „ökukona“ nokkur á Miklubraut gerði óskunda í umferðinni. Það var bara eitt í stöðunni og það var að skrifa Velvakanda bréf.
DETROIT - sportjeppi sem byggður er á GMC Hummer mun keppa á torfærukeppnum rafbíla um allan heim á þessu ári sem hluti af nýjum margra ára...