Sportbílasafn höfuðpaurs í stórum fíkniefnahring var gert upptækt árið 2020 eftir að bófinn var handtekinn. Hafði ódámurinn notað ágóða fíkniefnasölunnar til kaupa á 37 sportbílum. 29 þeirra voru boðnir upp fyrir skemmstu; þar af 13 sérútgáfur af Toyota Supra.
Ljósmyndir/paineauctioneers.com
Bílaáhugamenn geta víst líka verið durtar og það er nú bara eins og það er. Það sem er sérstakt við mál þessa tiltekna þorpara er að hann féll frá skömmu eftir að upp komst um allt heila klabbið (fíkniefnasölu og fleira misjafnt).
Nú, tæpum tveimur árum síðar, hefur stærstur hluti bílasafnsins loks verið seldur á uppboði eftir miklar lagaflækjur og almenn leiðindi.
Illa fengið fé en fallegir bílar
Það er hlýtur að vera erfitt að leiða hjá sér þá staðreynd að bílarnir voru jú keyptir fyrir illa fengið fé, ólöglegan gróða eða hvaða nöfnum sem við nefnum það. En sem betur fer var ekki haldin bílabrenna heldur fengu safnarar tækifæri til að bjóða í þessi fágætu ökutæki.
Þegar lögregla fann slotið eftir af hafa leitað í heila viku, kom í ljós að þar var allt fullt af dollurum, bílum og dópi. Jú og einn einmana köttur hafðist þar við.
Hvernig Cory Taylor dó og hvað hann gerði eða gerði ekki verður ekki rakið en um það má lesa t.d. hér.
The Fast and the Furious kynslóðin
Toyota Supra virðist hafa verið í uppáhaldi en Taylor átti þrettán stykki af fjórðu kynslóð þeirrar gerðar. Kynslóðin sem margir tengja við The Fast and the Furious kvikmyndirnar. Uppboðshaldarinn Stanley Paine bauð bílana upp þann 4. júní og samtals fengust 240 milljónir króna fyrir „Suprurnar“ 13.
Hæsta boðið var í 1998 árgerðina (ek. 37.000 km) en seldist hún á 35 milljónir króna. Bílasafnari frá Kaliforníu gerði þennan ljómandi góða díl og á núna þennan líka fína sportara.
Þessi seldist á 35 milljónir króna.
Næsthæsta boðið var í 1993 árgerðina (ek. 13.000 km) eða rúmar 30 milljónir króna.
30 milljóna kaggi.
Þessar ágætu Toyotur eru lítið eknar og það þykir alltaf gott þegar Toyotur í fornbílaflokki eru boðnar upp í Bandaríkjunum. Þar er hreinlega slegist um svona bíla eins og fjallað var um hér á Bílabloggi fyrir stuttu (hlekkur neðst).
Þó svo að Toyota Supra hafi verið aðalatriðið í þessari stuttu umfjöllun þá má nefna nokkra bíla til viðbótar úr safni Taylors sem boðnir voru upp á sama tíma:
Tveir Nissan 350z, tvær Honda S2000, tveir MMC Lancer Evolution, Acura Integra, BMW M4, og sjö BMW M3.
Og ekki má gleyma John gamla Deere traktornum sem af einhverjum ástæðum var á meðal sportbílanna.
Hér má sjá lista yfir bílana 29.
Af Toyotum í Vesturheimi og víðar:
Aðrar umfjallanir
Hvað eiga VAZ 2101, Premier 118NE, SEAT 124, og Murat 124 sameiginlegt? Eða Zaztava 125, Nasr 125?
Viltu vita hvernig hljóðið er inni í nýjum Mercedes-Benz EQS þegar stillt er á „Sport Mode“ og hljóðumhverfið (Soundscape) Vivid Flux? Það þarf ekki endilega að vera þögn í bílnum!
Mörgum finnst þetta vera flottasti jeppinn – öðrum finnst hann vera ljótur – hvað sem öllum finnst þá er verið að „hressa hann við“ þessa dagana....
Það eru ýmsar gerðir myndbanda sem teljast til sefandi eða róandi myndbanda. Undirrituð fann hið fullkomna „soothing“ myndband en það sýnir málningarferli Porsche! Vonandi finna fleiri hina stóísku sem ferlið kallar fram. Ef ekki þá er myndbandið í það minnsta flott!