Viltu vita hvernig hljóðið er inni í nýjum Mercedes-Benz EQS þegar stillt er á „Sport Mode“ og hljóðumhverfið (Soundscape) Vivid Flux? Hér fyrir neðan er „tóndæmi“ en TopGear í Hollandi deildi á YouTube stuttu myndbroti þar sem heyra má hvernig hljóðheimur eða hljóðumhverfið er sem sérfræðingar Mercedes hafa skapað.
Þetta er ævintýralegt á að líta en ævintýralegur virðist hljóðheimurinn einnig vera, sem fylgir hljóðkerfinu Burmester®. Myndir/Mercedes
Sumir hafa nefnt Star Wars
Burmester® hljóðkerfið fæst sem aukabúnaður í hinn nýja rafbíl Benz, EQS, og kostar um 1400 evrur (rúmar 200.000 íslenskar kr.). Því fylgir tvenns konar hljóðumhverfi eða hljóðheimar sem velja má eitt og annað úr, kjósi maður ekki þögnina eða útvarpið.
Umræða um þennan tiltekna hljóðheim, sem fæst í sportstillingu og með kerfið stillt á Vivid Flux, hafa verið nokkrar á þræði á Reddit.com og þar eru margir á því að eitthvað minni hann [hljóðheimurinn] á Star Wars.
Hægt er að hlaða niður ýmsum hljóðrásum og ætli möguleikarnir verði ekki óteljandi innan einhverra ára. En hér fyrir neðan er myndbrotið og takið eftir að hljóðið fylgir fyllilega aksturslagi ökumanns!
Aðrar umfjallanir
Mercedes-Benz sýnir hönnunarteikningu af GLA 2021 á undan frumsýningunni í vikunni...
BMW X1, Hyundai Ioniq 6, Kia Niro eru komnir í úrslit heimsbíls ársins 2023
Fátt fannst mér skemmtilegra, sem barni, en þegar húmoristinn og sögumaðurinn hann faðir minn heitinn, sagði mér sögur af bílunum hans séra Baldur Vilhemssonar í Vatnsfirði. Tengdust sögurnar akstri og Vestfjörðum órjúfanlegum böndum og pólitík blandaðist ósjaldan inn í þær.
Þegar það styttist í opinbera frumsýningu á hinum nýja Land Rover Defender þá er útlitið smám saman að koma betur í ljós