Ferðalangur deildi mynd af bíl með einkanúmeri í „Íslandshópi“ á samfélagsmiðlinum Reddit í gær. Spurði hann hvort bíllinn, sem stóð við Smáralindina, tilheyrði einhverjum frægum Íslendingi og voru viðbrögðin hin ágætustu.
Það er óhjákvæmilegt að fá nokkra athygli aki maður um á bíl með einkanúmeri. Svo ekki sé minnst á ef bíllinn er bæði fallegur og einkanúmerið sérstakt. Þá er nú næsta víst að fólk taki myndir af bílnum og jafnvel þeim sem bílnum ekur. Svo getur myndefnið birst víða án þess að maður hafi nokkuð um það það segja.
Eins og hér, til dæmis. Svo eru íslenskar grúppur á Facebook sem snúast eingöngu um númeraplötur, eins og Einkanúmerasamfélagið og Fyndin íslensk bílnúmer. Samanlagt tilheyra 5.200 notendur þessum grúppum.
Svo eru til erlendar síður þar sem íslensku einkanúmerin þykja mjög áhugaverð og eru ófáar myndir af bílnúmerum þar. Forsíðumyndin er einmitt fengin af einni slíkri síðu.
Númerið var á Hondu nokkurri í rúm 10 ár, eða þar til hún var seld. Nú er bíllinn aftur kominn með hefðbundið númer og er raunar í öðru Evrópulandi. Ljósmyndir/Olav Brekke/2011/Olav´s Plates
En snúum okkur aftur að færslunni á Reddit. Hér er skjáskot af henni:
Númerið er sannarlega sérstakt en það samanstendur af bókstafnum O og tölustafnum 0. Eða 00OO00. Núll núll O O núll núll. „Á einhver frægur þennan fína bíl?“ er spurt á síðunni og svörin mörg.
Nei, það er ekki þjóðhöfðingi sem ekur um á þessum fína Mercedes Benz S-Class sem fluttur var inn til landsins árið 2018.
Sitt sýnist hverjum um gildi einkanúmera og auðvitað ber að varast fullyrðingar um að einungis spjátrungar aki um á bílum með einkanúmer. Það eru nokkrir sem tjá sig um „hvers lags“ fólk fær sér einkanúmer á borð við þetta.
Fleiri greinar um íslensk bílnúmer:
Aðrar umfjallanir
Nýi Kia Niro rafbíllinn hlaut hið virta Gullna stýri, sem almennt er talið mikilvægasta viðurkenning sem bílum getur hlotnast í Þýskalandi...
Nafnið er svo sem ekkert spennandi en það skiptir engu máli þegar varan er svona fáránlega flott, er sagt um þennan nýja furðulega rafmagnsbíl...
Mercedes-AMG ONE setti nýtt met framleiðslubíla á Nürburgring-Nordschleife
Hvar værum við nú á þeirra? Blessaðra bílaspæjaranna? Tjah, við værum kannski ekkert annars staðar í veröldinni en við myndum ekki vera svona agalega vel með á nótunum hvað bílaprófanir framtíðarbíla snertir!