Hvar værum við nú á þeirra? Blessaðra bílaspæjaranna? Tjah, við værum kannski ekkert annars staðar í veröldinni en við myndum ekki vera svona agalega vel með á nótunum hvað bílaprófanir framtíðarbíla snertir!
Þetta er tekið í Nürburg í Þýskalandi en þar eru margir bílar prófaðir á hinum ýmsu stigum í þróunar- og framleiðsluferlinu.
Þessi sem er fyrir framan Q6 er líka mjög spennandi! Góður staður þarna í nágrenni við Nürburghringinn. Skjáskot úr meðfylgjandi myndbandi.
Segir bílaspæjarinn í þeim stutta texta sem fylgir myndbandinu að verið sé að prófa hinn nýja PPE-grunn (Premium Platform Electric) sem bíllinn er byggður á. Munu margar gerðir Audi og Porsche rafbíla nýta þennan grunn en hér má lesa allt um hann á ensku reyndar en þeir sem frekar kjósa íslenskuna geta lesið um grunninn í þessari grein okkar frá síðasta ári.
Hann er vel dulbúinn til að blekkja bæði augu og linsur.
Hér er myndbandið frá bílaspæjaranum:
Aðrar umfjallanir
Árið 1993 var Toyota söluhæsti bílinn á Íslandi með um 600 selda bíla eða um 20% af markaðnum. Í öðru sæti var Mitsubishi frá Heklu og Nissan frá Ingvari Helgasyni.
Það er aftur kominn sá tími ársins þegar tilkynnt er um úrslitakeppnina um verðlaunin eftirsóttu „World Car of the Year“ eða „Heimsbíll ársins“.
Hér er mikill töffari á 480 hestafla Ford Mustang Bulllitt. Því miður er töffarinn ekki flinkur ökumaður og þegar upp er staðið er hann ekki mjög töff. Hér er dæmi um hvernig á ekki að drifta.
Á komandi ári mun hámarkshraði verða lækkaður um alla borgina á flestum götum nema stofnbrautum