Það gekk ekki bara illa að sprengja Land Cruiser 300 í klessu heldur einfaldlega tókst það ekki. 15 kíló af TNT, 10  handsprengjur, 2 jarðsprengjur og 780 skothrinur úr hinum ýmsu frethólkum dugðu ekki til að lúskra almennilega á brynvörðum Cruisernum.

image

Auðvitað sér á honum en þetta er nú samt ekki neitt miðað við allt það sem dundi á bílnum. Skjáskot/YouTube

Þetta er auðvitað ekki ávísun á að hægt sé að plaffa á Toyota Land Cruiser eins og hann kemur frá framleiðanda án þess að sjái á bílnum. Nei, hér er um sérstaklega breyttan 300 Cruiser að ræða. Hann er brynvarinn af INKAS® og þolir greinilega allt mögulegt.

image

Þetta gera þeir ekki við alla bílana sem breytt er af INKAS® en einhvern þarf að prófa! Skjáskot/YouTube

Um þær breytingar sem gerðar hafa verið á bílnum má lesa hér en svo er þetta myndband hér fyrir neðan ansi magnað og segir heilmikið það sem gekk á! Rétt er að geta þess að 15 kíló af TNT er ekki alveg heldur samsvarar það sem sprengt var 15 kílóum af TNT. Það kemur líka fram í myndbandinu en rétt skal vera rétt.

Annað um Land Cruiser: 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is