Nú eru margir orðnir spenntir fyrir næsta bíl frá Rivian en það er 7 manna jeppi og sá er engin smásmíði! Hröðunin frá 0 í 100 er um 3 sekúndur og drægnin rúmlega 500 kílómetrar. Hann getur dregið allt að 3.5 tonn og virðist dugandi jeppi.
Hann átti að vera tilbúinn til afhendingar í lok árs en það verður víst ekki fyrr en síðla árs 2023 sem fyrstu bílar komast í hendur kaupenda.
Það eru því fleiri bílar en Cybertruck, hlunkurinn frá Tesla, sem seinna verða á ferðinni. En þegar þeir komast á ferðina verða þeir snöggir úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. Rivian R1S mun taka sér 3 sekúndur í það, eða 4 sekúndur ef aflminni útfærslan er tekin.
Drægni er frá 420-515 km og fer það eftir útfærslum. Rivian hefur gaman af því að sýna myndir af bílunum sínum og hér eru þær nýjustu sem ég held að hafi bara komið á síðuna þeirra í gær.
Tæknilegar upplýsingar um bílinn má finna hér ásamt öllu því helsta.
Myndir/Rivian.com
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Margir muna eftir blessuðum ferðamanninum sem ætlaði á hótel á Laugaveginum en endaði á Siglufirði. Þar var nefnilega LaugaRvegur en hann hefði betur sleppt „r“ inu og farið á Laugaveg í Reykjavík. Það getur nefnilega verið óheppilegt að treysta um of á leiðsögugræjurnar, eins og margir hafa sannreynt!
Ég var um tvítugt á níunda áratugnum. Frá 1980 til 1995 voru það smábílar með einhversskonar GTI merkingum sem gripu athyglina. Oftast voru þetta sömu boddýin...
Það gerist ekki betra en þetta: Sá besti af þeim bestu. Hyundai SEVEN hugmyndabíllinn vann til Red Dot verðlaunanna 2022 „Best of the Best“ en það eru virt hönnunarverðlaun.
Þetta er fyrsti bíllinn sem kemur frá stefnumótandi bandalagi Suzuki og Toyota, sem tilkynnt var um á síðasta ári og gefur vísbendingu...