Hagnýtt ráð varðandi ABS hringi
Þegar ABS hringur sem er á öxli eða liðhúsi brestur, springur eða skemmist á einhvern annan máta er það vegna ryðsöfnunar undir hringnum. Það skiptir ekki máli hvaða útfærsla af ABS hring það er; tenntur, gataður eða eins og er t.d. í Benz, segulmagnaður.
Svona lítur ABS hringur í Benz út þegar hann er í sínu náttúrulega umhverfi.
Þegar öxlinum hefur verið náð úr hjólnafinu og hann annað hvort tekinn úr eða orðið nógu gott aðgengi til að hreinsa allt ryð af sætinu og leifar af gamla ABS hringnum þar sem hringurinn á að sitja, þarf að skoða hvort það séu einhverjar leifar eða mikið ryð inni í gatinu þar sem öxullinn á að vera og hreinsa það í burtu.
Tenntur ABS hringur.
Þegar allt er tilbúið fyrir nýja ABS hringinn er zinkúða úðað á öxulinn þar sem hringurinn á að vera og hringurinn rekinn upp á með hamri sem er helst gúmmí- eða plasthamar til að skemma ekki neitt.
Gata eða gataður ABS hringur.
Það sem zinkúðinn gerir er að ryðverja sætið undir ABS hringnum þannig að hann endist lengur. Á meðan zinkúðinn er blautur virkar hann sem smurning þegar verið er að reka nýjan hring upp á öxulinn.
[Birtist fyrst í ágúst 2020]
Aðrar umfjallanir
Í framhaldi af umfjöllun hér á vefnum í gær um hættulega hált malbik, og einnig að núna nálgast sá árstími að lúmsk vetrarhálkan getur farið að lauma sér inn hjá okkur hvenær sem er
Sólarorkuver gangsett á þaki Polestar Reykjavík á Sumarsólstöðum við sólarupprás og frí áfylling sólarorku og reynsluakstur á Sólstöðuhátíð rafbílaeigenda 23. júní...
Þeir voru nokkrir, hönnuðirnir á sjötta áratug síðustu aldar sem ætluðu sér að slá í gegn hjá ríka og fína fólkinu; með flippuðum „baðstrandarbílum“. Eftirspurn var eftir léttum og nettum bílum, einkum á meðal þeirra efnameiri sem nutu lífsins við strendur Miðjarðarhafsins.
Ónei! Hvað gerir hann núna? Crazy Rocket-man er enn á ferðinni og að sjálfsögðu er allt rauðglóandi „undir“ honum..