Varð fyrir eigin bíl - þrisvar

Kanadísk kona átti slæman dag með eindæmum fyrir nokkrum árum síðan. Hún bar út franska dagblaðið Le Nouvelliste þennan dag eins og aðra virka daga. Allt gekk sinn vanagang þar til hún kom á svæðið Trois-Rivieres en þá fóru hlutirnir nokkuð fljótlega til fjandans.

Bíllinn fór rólega aftur á bak í hring og veslings konan reyndi af veikum mætti að komast upp í ökutækið. Tókst ekki betur til en svo að hún lenti undir hjólum þess aftur, sem er auðvitað alveg með ólíkindum.

Þegar bíllinn kom bakkandi þriðja hringinn ætlaði konugreyið að reyna aftur að komast upp í til að stöðva þessa andstyggilegu hringrás, varð skjögrandi konan fyrir bílnum í þriðja og síðasta skipti.

Nú heyrðu íbúar í nærliggjandi húsum ámátlegt sársaukakveinið í konunni sem var orðin illa lemstruð. Fólkið dreif að og var konunni snarlega dröslað úr vítahringnum sem leið bakkandi bílsins lá um. Ef svo glannalega má að orði komast.

Hringirnir fóru stækkandi alveg þar til lögreglan kom á staðinn og stöðvaði ökutækið sem þegar hafði gert mikinn skaða. Fætur konunnar voru býsna illa farnir eftir hringsól ökutækisins sem í þrígang fór yfir fætur hennar.

image

Þetta var í sjálfu sér engin ráðgáta. Konan ruglaðist sem fyrr segir á „Park“ og „Reverse“ í skiptingunni, með hræðilegum afleiðingum. Þvílík óheyrileg ólukka!

Annað óheppilegt:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is