Skodaunnandinn Ingimar Eydal

Fáir ef nokkrir þjóðkunnir menn hafa dásamað Skoda meira en Ingimar heitinn Eydal. Gleðigjafinn, húmoristinn, bjartsýnismaðurinn og síðast en ekki síst tónlistarmaðurinn Ingimar Eydal var Akureyringur og hann kunni vel að meta Skoda.

„Dálítið sérstök tegund“

Ingimar Eydal var fæddur á Akureyri þann 20. október 1936 og lést í ársbyrjun 1993. Um upprunann hafði hann meðal annars þetta að segja:

Þetta var árið 1991 í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn.

Í sama þætti upplýsti eiginkona Ingimars, Ásta Sigurðardóttir, áhorfendur um að kjallarinn í húsi þeirra hjóna væri fullur af gömlum hljóðfærum og „varahlutum í Skóda 55“. Uppskar hún að vonum hlátur gesta í sjónvarpssal og eflaust áhorfenda er heima sátu og horfðu á þáttinn.

Þorði ekki að fljúga með Ómari

Ómögulegt er að geta sér til um hversu margir tónlistarmenn spiluðu með Ingimari Eydal og í sjónvarpsviðtali árið 1988 sagðist hann sjálfur ekki hafa hugmynd um hjá hve mörgum hann hafði leikið undir á píanóið.

image

Ljósmynd/Sverrir Pálsson

Ómar Ragnarsson er einn þeirra sem þekkti Ingimar vel og oft komu þeir fram saman. Greindi Ómar frá því að þegar til stóð að fara eitthvert og flugferð í kortunum, hafi Ingimar oftar en ekki komið sér undan því að fljúga með Ómari. Honum var víst ekki vel við að fljúga.

„Venjulega endaði það þannig að Ingimar hringdi í mig og sagði: Uh, Ómar? Við erum að hugsa um að gera þetta að fjölskylduferð á Skódanum,“ sagði Ómar árið 1988 í myndbandi sem var á YouTube en er því miður ekki að finna þar lengur. „Þá kom ég fljúgandi og Ingimar á Skódanum.“

Gáfu Skódamönnum langt nef

Já, það er dagsatt sem fram kom í upphafi greinar og í auglýsingunni frá Jöfri, að fyrsta Skódann eignaðist Ingimar árið 1955. Þá var tónlistarmaðurinn 19 ára gamall og ökuskírteinið glænýtt. „Ég var farinn að spila og fá svolítið í vasann og um þetta leyti voru viðskiptin við Tékkóslóvakíu að opnast. Ég keypti mér nýjan Skoda 1200 - svokallaðan blöðruskoda, sem ég átti í 10 ár, keyrði hann í 100 þúsund kílómetra á einni og sömu vélinni og án viðgerða,“ sagði Ingimar Eydal í viðtali sem birt var í Morgunblaðinu sumarið 1990.

Kunna að smíða bíla fyrir stóra menn

Bílinn þann, Skoda 1200, sagðist Ingimar hafa selt á „okurverði eftir tíu ára dygga þjónustu.“ Og hvað gerði Ingimar þá? Jú, mikið rétt; hann keypti annan Skóda.

image

Það var Oktavía og næstu átta árin ók hann þeim bíl. „Eftir það hefur enginn getað sagt mér annað en að Skodi væri þrælsterkur og góður bíll.

Það er líka svo merkilegt við Skodann að hann er sniðinn fyrir stóra menn, eins og mig.

Ég held að þeir þarna fyrir austan [Tékkóslóvakíu], þrátt fyrir slæma stjórn, viti vel hvernig framleiða á bíla enda eru þarna bílasmiðir kynslóð fram af kynslóð,“ sagði Skodaunnandinn og var haft eftir honum í Morgunblaðinu sumarið 1990.

Gömul kona í nýjum kjól

Aftur í fór svo vélin í Skoda á sjöunda áratug síðustu aldar og fimm Skoda með vélina þar átti Ingimar. Sagði hann að undir lokin, þ.e. eftir 25 ára framleiðslu Skoda með vélina aftur í, hafi bíllinn verið orðinn úreltur. Alla tíð sterkur og góður en eftir á hvað hönnun og þróun snerti.

„Þeir fylgdust bara ekki nægjanlega vel með þróuninni. Það var verið að klæða gömlu konuna í nýjan kjól á margra ára fresti.“

Sá níundi

image

Þetta er fyrirsögn úr í Morgunblaðinu þann 17. maí 1989 og myndin sem fylgdi:

image

Þessi mynd af þeim Ingimari Eydal og Haraldi Sigurðssyni birtist í Morgunblaðinu. Mynd/Rúnar Þór

„Ingimar Eydal Skodaunnandi fékk afhentan fyrsta Skodann af gerðinni Favorite nú nýlega, en bifreið þessi er afrakstur þriggja fyrirtækja á þessum vettvangi; Porsche, Bertone og Skoda. Ingimar eignaðist sína fyrstu bifreið af gerðinni Skoda árið 1955 og hefur ævinlega síðan átt slíka bifreið. Nýi bíllinn sem Haraldur Sigurðsson frá Jöfri hf. afhenti Ingimari er níundi Skodinn hans, en hann hefur ekið um á þessum tékknesku bifreiðum sínum um hálfa miiljón kílómetra. „Ég stefni að því að aka milljón kílómetra á Skoda áður en yfir lýkur," sagði Ingimar.“

Heimsókn í Skodaverksmiðjurnar

„Hann var búinn að eiga mjög marga alltaf með sama númerið 1027“ sagði Inga Eydal dóttir Ingimars. Þá sagði hún föður sinn alltaf hafa keypt tímarit á tékknesku um Skóda sem hét Skoda Review. „Hann tók þetta svona alla leið, hann fór á sínum tíma og heimsótti Skódaverksmiðjurnar í Tékkóslavakíu.“

image

Skjáskot/RÚV

Þetta sagði Inga þegar rætt var við hana á RÚV í lok októbermánaðar árið 2011 en þá voru haldnir tónleikar í Hofi á Akureyri til heiðurs Ingimari Eydal sem hefði orðið 75 ára hefði hann lifað. Af þessu tilefni var á sama stað sett upp sýningin „Fjölskylduferð á Skóda“ og sagði Inga að þannig væri minningin um Skódana hans Ingimars; þeir hafi verið hluti af fjölskyldunni.  

Kæru lesendur, svo dáðum og elskuðum manni er ekki hægt að gera skil í einni lítilli grein. Það kemur því vel til álita að skrifa meira síðar, enda til afskaplega margar skemmtilegar bílasögur sem tengjast Ingimari Eydal.

Ábendingar hvers kyns þigg ég með þökkum og er best að senda þær á netfangið malin@bilablogg.is

Tengt efni:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is