Ford Fusion - síðasti fólksbíllinn undir merki Ford á Ameríkumarkaði hættir
Ford Fusion: kom á markað 2006 en er nú hættur. Mynd: Ford.
Bandaríkin voru svo sannarlega „land hefðbundinna fólksbíla“ um mjög langt árabil, en margt hefur breyst á síðustu árum og núna á dögunum kynnti Ford að þeir myndu hætta með síðasta eiginlega fólksbílinn, þegar tilkynnt var um endalok Ford Fusion.
Bílavefurinn Jalopnik fjallar um þessi endalok Fusion með þessum hætti:
Fusion mun því bætast í hóp Fiesta, Focus og Taurus bræðra sinna í hinu mikla ruslgarði á himni“, segir Jalopnik.
Hlutur meðalstórra fólksbíla hefur verið kjarninn
„Hin meðalstóra fólksbifreið hefur verið grunnurinn í framboði hjá Ford síðan sá hluti varð til. Þeirra á meðal voru Falcon, Maverick, Granada, LTD, Taurus og Fusion. Erfitt væri að segja að einhverjar af þeim gerðum væru sérstaklega spennandi, en margar þeirra voru byltingarkenndar og veittu bandarísku fjölskyldunni nákvæmlega réttan bíl til að komast um þjóðvegina og annað sem leiðin lá. Ég veit að ekki margir munu syrgja það þegar Fusion yfirgefur okkur, en þetta var virkilega góður bíll“, segir Jalopnik-vefurinn.
Ford hætti að taka við nýjum pöntunum fyrir Fusion í febrúar og hafði í hyggju að loka framleiðslulínunni 21. júlí, en vegna kórónavírusfaraldursins var lokuninni ýtt aftur til loka mánaðarins. Síðasti Fusion-bíllinn rann af færibandinu í Hermosa í Mexíkó 31. júlí, samkvæmt frétt frá Ford Authority. Þegar Lincoln Continental hættir í lok árs 2020 mun FoMoCo ekki lengur framleiða neina fólksbíla, nema Mustang og færast yfir í jeppa og pallbíla.
Aðrar umfjallanir
Næsti Mercedes E-Class kemur árið 2023 og á tímum alrafmagns endurfæðingar fyrir þýska vörumerkið mun hann reyna að sanna að...
Upphituð öryggisbelti eru að koma til að gera vetrarakstur þægilegri...
Jeep Avenger er sigurvegari 2023 bíll ársins í athöfn sem haldin er í fyrsta sinn á alþjóðlegu bílasýningunni í Brussel...
Þetta litla kvikindi kemst upp í 130 km/klst og hefur verið líkt við Teslu hvað tækni snertir en verðlagningin þykir nær Ford Fiesta. Útlitslega er hann þó í líkingu við eitthvað löngu grafið og gleymt.