Brandon mun aldrei framar týna bíllyklinum
Brandon Dalaly virðist hafa andúð á lyklum. Í það minnsta hefur hann gengið býsna langt til þess að komast hjá því að týna lyklum, læsa sig úti o.s.frv. Hann er alsæll með staðinn þar sem hann geymir lykilinn að Teslunni sinni.
Nei, til hvers að fylla vasana af lyklum þegar maður getur fyllt líkama sinn af örflögum (hóst hóst)?
Í viðtali við Teslarati greindi Brandon frá því að þetta væri raunar ekki fyrsta ígræðslan hans:
En hvað með Apple Pay?
Maður spyr sig hvort ekki sé hægt að nota Apple Pay eða álíka til að greiða snertilaust fyrir hluti úti í búð. Brandon virðist hrifnari af því að vera með þetta allt í „lúkunum“ ef svo má segja. „Jú, þetta er í sjálfu sér ekkert frábrugðið Apple Pay. Þetta virkar alveg eins og það nema það er bara í höndunum en ekki símanum,“ sagði hann við blaðamann Teslarati.
Undirritaðri er fyrirmunað að skilja af hverju Brandon kýs að hafa þetta svona en það er nú svo margt sem maður skilur ekki. Þetta er sannarlega eitt af því.
Örflagan kostar á bilinu 200 - 300 dollara og svo borgaði hann 100 dollara fyrir að fá flúrara eða „gatara“ til að pota þessu inn undir.
Hvað svo?
Blaðamaðurinn spurði örflögukarlinn, Brandon, hvort þetta væri kannski eins og húðflúr fyrir tæknifólk; eitthvert æði sem myndi fara út í vitleysu.
Brandon er ekki spámaður þótt hann sé örflögumaður en hann sagðist ekki ráðgera að fá græddar í sig fleiri örflögur. Alla vega ekki á næstunni.
„Í mínum huga er þetta mjög rökrétt. Svo er þetta líka nokkurs konar partíbrella því með því að tengja símann við þetta þá logar grænt ljós undir yfirborði húðarinnar,“ segir Brandon og ekki veit ég í hvernig teiti svona karl fer og slær í gegn með sinni grænu krumlu en svona er þetta nú.
Meðan einn fær sér eyrnalokka og annar húðflúr, fær Brandon Dalaly sér bara flögur. Hér er viðtal við manninn:
Fleira óhefðbundið tengt lyklum framtíðar:
Aðrar umfjallanir
Það er ekkert launungarmál að notaðir og nýir bílar seljast eins og heitar lummur víða í heiminum og þar eru Bandaríki Norður-Ameríku engin undantekning. Það sem kemur kannski dálítið á óvart er hvaða bíll seldist hraðast allra í júnímánuði.
Við fjölluðum um bílaframleiðandann Dacia á dögunum af því tilefni að fljótlega á þessu ári verða þau skemmtilegu tímamót í sögu Dacia Duster að tveggja milljónasta eintakinu verður ekið af færibandi bílaverksmiðjunnar í Mioveni í Rúmeníu frá því að framleiðsla bílsins hófst árið 2010.
Fyrsti framleiðslubíllinn frá Rimac er loksins tilbúinn og kominn á götuna.
Nú liggur fyrir hvaða bílar keppa um titilinn “bíll ársins 2021 á Íslandi”, en Bandalag Íslenskra Bílablaðamanna (BÍBB) hefur tilkynnt hvaða bílar komust í úrslit...