Óvinsælasti maðurinn í þorpinu
Bíllausi dagurinn er í dag en það breytir því ekki að við bílablaðamenn skrifum eins og aðra daga um bíla. Áðan birti Mat, vinur minn (einhliða vinátta reyndar því hann þekkir mig ekki) hjá CarWow, stórgott myndband þar sem hann er á 3 tonna og 1.000 hestafla amerískum pallbíl í smáþorpi á Englandi.
Viðbrögð annarra vegfarenda eru, tjah, áhugaverð! Það er ekkert grín að vera á svona tröllabíl á stað eins og þessum. Sjáið bara!
Fleira um stóra trukka:
Aðrar umfjallanir
Ram Power Wagon hefur getið sér gott orð á þessari öld sem fullkominn pallbíll í torfærum. En nafnið á sér miklu lengri sögu en það. Fyrsti Power Wagon...
SsangYong, nú þekkt sem KG Mobility, afhjúpaði 30.000 dollara rafknúinn sportjeppa sem það vonast til að selja í Evrópu.
Ford hefur afhjúpað rafknúinn sendibíl sem heitir E-Transit Custom sem var þróaður í stað Transit Custom í Evrópu. Hvað stærðina varðar er þessi nýi...
Eitt er vörumerkið undir hatti VW-samstæðunnar sem er lítt þekkt hér á landi, en það er Seat á Spáni...