Margir borga fyrir sóun á hleðslurafmagni
Allt að 30% raforku fara til spillis þegar hlaðið er úr venjulegri innstungu
Fagmenn mæla með hleðslustöð
Með hækkandi orkuverði í Evrópu horfa æ fleiri til rafbíla, hvernig þeir nýta raforkuna og eins mismunandi aðferða við að hlaða rafbílinn heima.
„Allt að 30 prósent af orkunni geta tapast frá innstungunni í bílinn. Það verður dýrt eins og raforkuverðið er í dag“, segir Roger Ytre-Hauge, sérfræðingur í bílamálum hjá Frende Forsikring.
Tölurnar koma frá ADAC, stærstu samtökum bifreiða í Evrópu. Greiningin sýnir að orkutapið er umtalsvert ef þú hleður rafbílinn, eða tvinnbílinn, á gamla mátann.
Ef þú hleður á þennan hátt, með því að hlaða beint frá venjulegri innstungu, taparðu miklu afli.
Nýju reglurnar segja að ef þú ætlar að hlaða heima þá verður þú að hafa hleðslustöð. Í nýja staðlinum gilda hvorki venjulegar né iðnaðarinnstungur.
„Rafmagnstapið gefur aðra ástæðu til að setja upp hleðslubox heima. Hleðslugetan er meiri og hún fer líka hraðar. Bættu allt að 30 prósenta aflmissi ofan á, og rökin fyrir því að halda í venjulegu innstunguna eru ekki svo mörg lengur,“ segir Ytre-Hauge.
Rannsóknir ADAC sýna einnig að það er umtalsvert tap á afli ef borin er saman hleðslustöð og hefðbundin rafmagnsinnstunga.
„Eins og raforkuverð er núna í Noregi er heimskulegt að hlaða með lægri afköstum. Þú notar meiri tíma á sama tíma og þú tapar miklu afli. Þá verður rafmagnsreikningurinn fljótt hár,“ segir yfirmaður bílamála hjá Frende.
Mælt er með heimahleðslustöð
Bílablogg leitaði til Ísorku, sem eru reynsluboltar á sviði hleðslu á rafbílum og spurðum þá álits á aðstæðum hér á landi.
„Við mælum við ávallt gegn því nema í brýnustu nauðsyn. Á sama tíma hefur Ísorka aldrei selt eða boðið lausnir fyrir innstungu eða milli/breyti stykki“, segir Sigurður.
„Rétta leiðin er að nota viðeigandi lausnir eins og heimahleðslustöð í öllum tilfellum líkt og framleiðendur bíla mæla með sem og HMS (Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun).
Það getur því verið skammgóður vermir að spara í kaupum og faglegri uppsetningu á heimahleðslustöð þegar fólk og fyrirtæki eru að fjárfesta í nýjum rafbílum. Hvort sem um er að ræða hreinn rafbíll eða tengiltvinnbíll.“
Aðrar umfjallanir
Renault endurheimtir hinn goðsagnakennda fjölskyldubíl sinn, Renault 4, en nú með rafmagni.
Renault Megane E, sem aðeins notar orku frá rafgeymum, verður „einn samkeppnishæfasti rafbíll í heimi“ þegar...
Ford hefur hleypt af stokkunum nýrri útgáfu af Ranger pallbílnum með húsi og bara grind þar fyrir aftan, sem fyrirtækið segir að geti lagt grunninn að fjölbreyttu sérhæfðu ökutæki innan byggingariðnaðarins...
Það er ekki að ástæðulausu sem eigendur Tesla Plaid ættu hreinlega að elska umferðarljós. Það er að segja ef þeir eru fremstir á rauðu ljósi. Þetta örstutta myndband segir allt sem segja þarf um það.