Helstu punktar:
- Goðsögnin glæsilega snýr aftur
- Sjö G.O.A.T akstursstillingar
- Öflugt HOSS fjöðrunarkerfi
- Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi
- 330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting
Aðeins 30 eintök í boði til að byrja með
Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því koma 30 eintök af Ford Bronco til landsins í lok nóvember næstkomandi, langt á undan öðrum mörkuðum í Evrópu, og það gæti verið talsvert langt í næstu sendingu.
Goðsögnin snýr aftur!
Ford Bronco er Íslendingum mjög vel kunnugur enda var hann óhemjuvinsæll fyrir nokkrum áratugum og hans helstu aðdáendur hafa engu gleymt.
Hönnuðir nýja Ford Bronco sóttu innblástur í gamla útlitið frá árinu 1966 og héldu í hrátt yfirbragð og ævintýraandann sem vissulega liggur yfir jeppanum.
Sex til sjö G.O.A.T akstursstillingar
Þessi skemmtilega skammstöfun, G.O.A.T, stendur á ensku fyrir "Goes Over All Terrain", sem þýða mætti á íslensku sem "Kemst yfir hvers kyns torfærur".
Öflugt H.O.S.S. fjöðrunarkerfi
H.O.S.S skammtstöfunin stendur á ensku fyrir "High-speed Off-road Suspension System", sem þýða mætti á íslensku sem "Fjöðrunarkerfi fyrir hraðakstur í erfiðum aðstæðum".
Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi
Það skiptir auðvitað miklu máli að hafa sem besta stjórn á bílnum í torfærum og erfiðum aðstæðum og þar koma rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi í Ford Bronco sterkar inn.
Þær gera það að verkum að bæði hjólin á sama öxli snúast á sama hraða og dreifa aflinu jafnt til að gera aksturinn auðveldari.
330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting
Það vantar auðvitað ekki afl í Ford Bronco! Ford Bronco Wildtrak er 330 hestöfl og Ford Bronco Raptor er 418 hestöfl enda bílarnir færir í flestan sjó með tog upp á 557-597 Nm.
Hér er svo algjörlega vert að nefna eiginleika eins og sérstaka beygjuaðstoð og hraðastilli fyrir krefjandi akstur (Trail Turn Assist og Trail Control).
En rúsínan í pylsuendanum er án efa svokallaður eins fetils akstur (1 Pedal Drive) sem gerir ökumanni kleift að keyra auðveldlega löturhægt og stöðva bílinn án þess að stíga á bremsuna.
Hægt er að velja á milli tveggja útfærslna af Ford Bronco
Til að byrja með kemur Ford Bronco til Íslands í tveimur búnaðarútfærslum, Wildtrak og Raptor:
Fréttin hefur verið uppfærð - síðast kl. 22:37
Það er komið verð á gripinn en það er frá 20.950.000 kr.
Texti og myndir: Brimborg
Aðrar umfjallanir
Þá er komið að upprifjun á bílum áranna 1981 til 1990. Þetta er áratugurinn sem undirritaður fékk bílprófið og er því með þennan áratug í fersku minni. Margir evrópsku bílaframleiðandanna...
Nissan hefur hafið raðframleiðslu á hinum nýja, alrafmagnaða Nissan Townstar - litlum sendibíl fyrir Evrópumarkað...
Sjö sæta ID.Buzz hefur sést í vetrarprófunum, svo það er greinilega farið að styttast í þannig útgáfu af bílnum...