Nýr Volvo EX40 á leiðinni?
Nýlegar vörumerkjaumsóknir benda til þess að lítill rafdrifinn sportjeppi frá Volvo gæti heitið EX40 eða EX30
Volvo var að kynna nýtt flaggskip, alrafmagnaðan sportjeppa í formi hins nýja EX90. En honum mun væntanlega fylgja ný grunngerð frá Volvo – rafbílinn „EX40“ strax á næsta ári, samkvæmt nýju myndbandi sem Volvo hefur sýnt.
Hér má sjá hvernig nýi litli jeppinn muni líta út að aftan.
Kynningarmyndin sem Auto Express birtir skilur okkur ekki eftir í neinum vafa um stærð bílsins, sem verður nátengdur nýja Smart #1 jepplingnum vegna þess að parið deilir hinum nýja Geely-þróaða SEA grunni.
Smart #1 jepplingurinn er „systurbíll“ þessa nýja Volvo smájeppa
Kynningarmyndin frá Volvo sem sýndi nýja EX90 (til hægri) og væntanlega litla sportjeppann saman.
Við sjáum að EX30/40 mun nota sömu nýju afturljósamerki og EX90, og mun vera kubbslaga lítill sportjepplingur, með lóðréttan afturhlera og mjög stutt yfirhang að framan og aftan.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Eitt þeirra tækja sem komið hefur til viðbótar öðrum öryggisbúnaði í bílum er myndavél sem fest er á framrúðu bílsins og skráir allt sem gerist í umferðinni.
Nú gefum við annað eintak af bókinni Bílamenning eftir Örn Sigurðsson. Forlagið leggur til nokkur eintök af þessari fínu bók og hana getið þið eignast með því að taka þátt í smá sprelli hér. Fróðlegu sprelli. Viltu vera með?
Þó fæstir kunni að tengja Corvettur við geimferðir og NASA þá er tengingin nú samt sterk og hefur verið lengi. Corvettur geimfaranna þriggja, áhafnar Apollo 12, eru sennilega þekktastar í því samhengi.
MG Marvel kemur á markað í Evrópu í þessum mánuði. Bretar munu þó þurfa að bíða eitthvað eftir útgáfu bílsins með stýrinu „réttum megin“ en Breski markaðurinn er ekki í forgangi þótt stærstur sé í álfunni.