Frumsýning á fjórum stöðum
Maður getur víst ekki verið á mörgum stöðum á sama tíma en það getur Toyota Corolla Cross aftur á móti. Það eru nefnilega komin eintök til landsins og á morgun, laugardag, verður þessi nýjasti meðlimur Corolla-fjölskyldunnar til sýnis og reynsluaksturs á fjórum stöðum á landinu.
Mynd/Toyota Europe
Hér er fréttatilkynning frá Toyota:
„Corolla Cross verður frumsýnd á laugardag [12. nóvember] hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni [Garðabæ], Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri. Sýningarsalir opna klukkan 12 og þar verður vel tekið á móti gestum sem geta skoðað þessa nýjustu viðbót við Corolla línuna og reynsluekið bílnum.
Mynd/Toyota
Þessa bíls hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu enda hentar hann vel við íslenskar aðstæður. Með tilkomu Corolla Cross er úrval sportjeppa hjá Toyota orðið mjög fjölbreytt en fyrir eru Yaris Cross, RAV4 og Highlander. Corolla Cross sameinar kosti rúmgóðs fjölskyldubíls og sportjeppa.
Farangursrýmið er 433 lítrar og stækkar í 1337 lítra þegar aftursætin eru felld niður. Hann er ríkulega búinn með 2.0 lítra vél, 197 hestöfl og aðeins 7,5 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða.
Þessi nýjasta Corolla verður fáanleg í þremur útfærslum, Active, Active + og Luxury og kostar framhjóladrifin frá 6.590.000 kr. Fjórhjóladrifin kostar frá 6.990.000 kr.“
Mynd/Toyota Europe
Mynd/Toyota Europe
Mynd/Toyota Europe
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Kia hefur opinberað glænýtt lógó sem hluti af víðtækri endurskoðun sem mun sjá áður kóreskt merki, sem áður var meira miðað á hagkvæmni...
AB varahlutir hafa sýnt og sannað að þar vinnur fólk sem er til í margs konar sprell þegar það á við. Í gær gafst auðvitað tækifæri til að bregða á leik og vera með galsa því þann fyrsta apríl má margt sem aðra daga telst tilheyra gráu svæði.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Ef hláturinn lengir lífið þá er nóg eftir hjá bílablaðamanninum Matt Gallagher. Gallagher fjallar um Formúlu 1 hjá WTF1.com en hann var svo lánsamur að fá að „sitja í“ hjá fjórföldum heimsmeistara; sjálfum Sebastian Vettel. Blaðamaðurinn hló nánast allan tímann.