Jay Leno brenndist alvarlega þegar kviknaði í bílskúrnum
Bandaríski grínistinn, sjónvarpsmaðurinn og bílasafnarinn Jay Leno brenndist alvarlega eftir að kviknaði í einum bíla hans í bílskúrnum
Bandaríski grínistinn Jay Leno, sem einnig er þekktur fyrir mikla ástríðu sína fyrir bílum og mikið bílasafn, var fluttur í skyndi á brunamiðstöð í Los Angeles eftir að hafa brennst í andliti.
Ég er í lagi. Þarf bara viku eða tvær til að komast á fætur aftur."
Hinn 72 ára gamli grínisti hefur sagt sig frá öllum skuldbindingum sínum það sem eftir er vikunnar til að einbeita sér að bata.
Jay Leno í „bílskúrnum“sínum
Á meira en 180 bíla og 160 mótorhjól
Jay Leno er vel þekktur fyrir ást sína á öllum bílum og á safn af meira en 180 bílum og yfir 160 mótorhjólum. Hann á svo marga að hann er meira að segja sinn eigin þátt á CNBC sem heitir Jay Leno's Garage og er með YouTube rás undir sama nafni.
(frétt á vef CarThrottle)
Aðrar umfjallanir
Það er óhætt að fullyrða að fleiri tegundir en maðurinn heillist af Toyota Land Cruiser. Það veit náttúrulífsljósmyndari nokkur í Austur-Afríku býsna vel en Cruiserinn hefur verið góður segull fyrir myndefni sem laðast að bílnum.
Vegna kórónuveirufaraldursins hefur bílaframleiðsla víða um heim stöðvast, verðmæti bílafyrirtækja hefur fallið...
Mercedes-Benz ætlar að afhjúpa nýtt flaggskip sem hún gerir ráð fyrir að muni leiða rafhlöðusviðið á markaðnum og fylgja eftir því loforði...
Kvöldið sem nýr Ford Bronco var frumsýndur og pöntunarvefurinn opnaður seldust allir First Edition bílarnir upp alls 3500 bílar sem allir fóru á sama kvöldinu...