Nýr Bronco selst eins og nýbakaðar rjómapönnsur
Kvöldið sem nýr Ford Bronco var frumsýndur og pöntunarvefurinn opnaður seldust allir First Edition bílarnir upp alls 3500 bílar sem allir fóru á sama kvöldinu.
Hann er ótrúlega flottur nýi Broncoinn.
Eftirspurnin sem sýnilega var svo fáránlega mikil gerði að verkum að Ford ákvað að tvöfalda framleiðslu First Edition af bílnum – og þeir eru líka allir seldir - 7000 kvikindi.
Tilkynningin sem kom frá Ford var send á alla þá sem þegar höfðu pantað og skilaboðunum var dreift á netinu og spjallrás Bronco 6G. Það sem þótti skondið er að tilkynningin hljóðaði á þá leið að þeir sem hefðu forpantað gætu nú hætt við því ákveðið hefði verið að framleiða 1000% meira magn. Ætli söfnunargildið minnki svo með 100% fleiri bílum að menn myndu hætti við? Það kom síðan í ljós að það skipti engu máli – viðbótar bílarnir seldust upp um leið og þeir voru settir í sölu á netinu.
Ódýrasta útgáfan af tveggja dyra útgáfunni er á um 8.4 milljónir í USA.
Nú er bara að hafa samband við Brimborg á Íslandi og athuga hvenær þeir geti afhent nýjan Bronco og hvort hægt sé að panta First Editon hjá þeim.
Byggt á frétt Autoblog og Top Speed.
Aðrar umfjallanir
Hann byrjaði sem tveggja dyra pallbíll í fullri stærð, en síðan þá hefur hann sprottið í minni gerðir, fjögurra dyra gerðir og auðvitað núverandi gerðir fyrir götuakstur.
Það má með sanni segja að keppnislið, akstursíþróttafólk og bílaframleiðendur klikka ekki á því að senda jólakveðjurnar. Sumar eru með eindæmum frumlegar, einhverjar nokkuð sígildar og aðrar sprenghlægilegar. En allar auðvitað fallega hugsaðar. Það eru nú jólin!
Eitt mikilvægasta öryggistækið á bílnum eru þurrkublöðin. Núna þegar veður gerast misjöfn er mjög mikilvægt að þau séu í lagi...