200 hestafla Jeep Compass á næsta ári
2023 Jeep Compass á Bandaríkjamarkaði fær nýja 2,0 lítra túrbó fjögurra strokka vél með 200 hestöflum
Aflið eykst um 23 hesta og 66,4 Nm, sem sent er um nýjan átta gíra sjálfskiptingu
Við hér á Íslandi höfum þurft að sætta okkur við að Jeep Compass sé aðeins í boði í tengitvinnútgáfu – 4Xe – en vestur í Bandaríkjunum var verið að tilkynna að bíllinn sé að fá aflmeiri vél á næsta ári.
Ný 2,0 lítra vél
Í apríl sagði Jim Morrison, stjórnandi Jeep, að Compass myndi fá eitthvað nýtt undir húddið áður en árið rennur út. Loksins er nýja aflrásin komin. Út fer 2,4 lítra fjögurra strokka Tigershark með 177 hestöfl og 240 Nm, inn kemur 2,0 lítra túrbó fjögurra strokka úr „Global Medium Engine“ fjölskyldunni sem er 200 hestöfl og 299 Nm.
Nýja vélin sem kemur í Jeep Compass á næsta ári.
Þetta er aflminni útgáfa af vélinni sem fer í Dodge Hornet, var einnig ætluð fyrir Alfa Romeo Tonale en sem hætt var við nýlega.
Í stað þess að skipta í gegnum gamla níu gíra sjálfskiptingu, sendir nýja vélin afl í gegnum nýja átta gíra sjálfskiptingu.
Það sem meira er, hún sendir kraft til allra fjögurra hjólanna í öllum útfærslum; núna er hætt með framhjóladrifsmöguleikana sem voru fáanlegir á Sport, Latitude og Altitude á Bandaríikjamarkaði og þetta dettur núna út með Tigershark-vélinni.
Það er létt yfir innanrýminu í nýju átgáfunni af Compass.
„Nútíma tölur um afköst, vökvafylltar vélarfestingar, uppfærð gírskipting, stærri sveiflujöfnun að aftan og endurstillt rafstýri ættu að vera blessun fyrir krafta og gæði, og það er kominn tími til“, segja þeir á vef Autoblog.
Annars staðar á uppfærslulistanum eru ný 17 tommu felgur fyrir Sport og Latitude búnaðarstigið, Trailhawk er með nýjar málaðar 17 tommu gljáandi svartar felgur og sérútgáfan (RED) klæðningin bætir við tiltækum ytri litum.
Fyrir farþega er nýr öryggisbúnaður meðal 80 staðlaðra atriða öryggisbúnaðar og valfrjálsra öryggisþátta til staðar, þar á meðal er syfjuskynjun ökumanns, áminning um aftursæti og ökutækisviðvörun.
2023 Compass High Altitude.
Kemur í sýningarsali í Bandaríkjunum í byrjun næsta árs
Í Bandaríkjunum er hægt að panta 2023 Compass núna, en hann kemur ekki í sýningarsali fyrr en á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Grunngerðir hækkar þó um 2.710 Bandaríkjadollara vegna þess að ódýrari framdrifsgerðir eru ekki lengur í boði.
Hér eru nokkur verðdæmi fyrir komandi Compass línu í Bandaríkjunum ásamt verðbreytingum frá 2022 útgáfum eru: Sport: 29.995 dollarar (hækkun um 1.210 dollara, Limited: 35.495 dollarar (hækkun um 605 dollara) Trailhawk: 35.745 dollarar (hækkun um 740 dollara).
(fréttir á nokkrum bílavefsíðum, þar á meðal Autoblog)
Aðrar umfjallanir
„Bíllinn er alveg svakalegur,“ segir framkvæmdastjóri Alfa Romeo um rafbílinn Alfa Romeo Giulia sem kemur árið 2024.
Það er kannski ekki fallegt að hefja umfjöllun með svo vafasari fullyrðingu: Að til sé Porsche sem flestir ættu að hafa ráð á að kaupa...
Er hægt að aka eftir leiðsögukerfi sem ekki er tengt staðsetningarbúnaði? Hér er slíkt kerfi frá áttunda áratugnum skoðað. Mjög áhugavert og tjah, mögnuð hugmynd?
Alþjóðlega bílasýningin í Genf er ein af fimm bestu bílasýningum heimsins sem viðurkenndar eru af Alþjóðasamtökum bílaframleiðenda (OICA)...