Porsche sem flestir hafa efni á
Það er kannski ekki fallegt að hefja umfjöllun með svo vafasari fullyrðingu: Að til sé Porsche sem flestir ættu að hafa ráð á að kaupa. Flækjum ekki málið um of. Hér er nefnilega um að ræða Porsche 911 frá Lego og hægt er að byggja bílinn hvort heldur sem Targa eða Turbo.
Nei, þetta kom nú eitthvað vitlaust út. Segjum frekar: Þau okkar sem hætta ekki að leika sér þótt fullorðin séum.
Fyrirmyndin er byggð á 911 frá lokum áttunda áratugarins/byrjun þess níunda, eins og hönnuðurinn Mike Psiaki hjá Lego greinir frá í myndbandinu hér að neðan.
Ástæða þess, að mati undirritaðrar, að börn eiga auðvelt með að setja saman heilu IKEA innréttingarnar er sú að þau eru búin að byggja helling úr Lego. Í alvöru! Fullorðið fólk getur hreinlega sturlast, já, gengið af göflunum við að setja saman hillur eða eitthvað sem virðist einfalt (tala af reynslu).
Þá kemur 8 ára Lego-vanur krakki og græjar þetta einn tveir og þrír.
Með öðrum orðum þá skal ekki draga gildi Lego í efa! Þessi fíni bíll sem kemur formlega á markað 1. mars (útvaldir Lego-meistarar geta keypt hann strax í gegnum vefsíðuna www.lego.com) er gerður úr 1458 kubbum og er svakalega nákvæm eftirlíking upprunalega bílsins.
Hægt er að hreyfa sæti, stýri (og framhjólin í samræmi við það), gírstöng, opna allt sem „þarf“ að opna. Boxer-vélin, loftkæld auðvitað, er á sínum stað aftur í og vindskeiðin í öllu sínu veldi eins og vera ber.
Eins og sönnum flóttabíl sæmir þá fylgja honum nokkrar númeraplötur.
Nú, í vafasamri fyrirsögn minni gaf ég í skyn að flestir ættu að geta eignast þennan Porsche. Þetta er auðvitað dýrt dót en kannski ekki dýrara en að fylla 80 lítra bensíntank eða bjóða nágrönnunum í bíó (nema maður búi í stórri blokk).
Verðið er um $150 á vefsíðu Legó en þar sem bíllinn góði er ekki kominn í almenna sölu er ekki hægt að spá fyrir um verð hér á landi. Vonandi endar það ekki í einhverri stjarnfræðilegri tölu því þennan Porsche vil ég gjarnan eignast og byrja þegar í stað að safna í sparigrísinn.
Það er nefnilega mun skemmtilegra að setja saman fínan bíl heldur en innréttingar, hillur, borð eða stóla!
Aðrar umfjallanir
Næsti rafbíll Ford mun nota grunn frá VW Group og vera í stærð fyrir neðan Mustang Mach-e í Ford-línunni..,
Í júnímánuði árið 1985 átti að keppa í annað skipti á brautinni í Spa (Circuit de Spa-Francorchamps) í Formúlu 1. Nokkru eftir fyrstu keppnina þar, árið 1983, var farið í að leggja millilag á brautina til að bæta veggripið í rigningu. Það fór öðruvísi en búist var við.
Er Audi nokkuð að veifa gúmmelaði framan í mann án þess að gefa manni að smakka? Vonandi ekki því þessi hugmyndabíll, Skysphere, virðist alvarlega flottur og ærir upp í manni bílasultinn.
Það fer ekki mikið fyrir golfbílum almennt séð og er það mat margra að þetta sé tæki sem allir ættu að ráða við. Það er bara ekki svo. Þessi hafði ekki nokkra stjórn á golfbílnum og svona endaði ferðalagið...